Fagna því að hafa fengið að lifa svona langan dag Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. ágúst 2014 14:30 Bjarnfríður ásamt dótturdóttur sinni, Örnu Kristínu Einarsdóttur, sem deilir með henni afmælisdeginum. „
Ég er ekki manneskja sem hefur haldið mikið upp á afmælin sín en nú hef ég tórt svo lengi og ákvað að fagna því að hafa fengið að lifa svona langan dag,“ segir Bjarnfríður Leósdóttir, fyrrverandi kennari og verkalýðsfrömuður, glaðlega. Hún verður níræð á morgun, 6. ágúst, og verður með opið hús í sal Félags eldri borgara á Akranesi milli klukkan 17 og 19. Bjarnfríður fæddist á Másstöðum við Akranes og hefur átt heima á Skaganum alla sína tíð. Nú býr hún á dvalarheimilinu Höfða. Frá því hún lauk prófi frá Samvinnuskólanum kveðst hún hafa unnið fjölbreytt störf, allt frá síldarsöltun til setu á Alþingi. „Ég jók við menntun mína á fullorðinsárum og gerðist kennari við Fjölbrautaskólann og tók líka leiðsögumannspróf,“ rifjar hún upp og minnist einnig starfa sinna með hinum ýmsu félögum en Bjarnfríður varð þjóðþekkt fyrir afskipti sín af verkalýðs-og jafnréttismálum. Í áratugi hefur hún verið í bókmenntaklúbbi sem enn er við lýði. „Við komum alltaf vel lesin á fundi og það hefur gefið okkur mikla menntun og vitneskju um bókmenntir. Svo var ég líka í leikfélaginu og eitt af því sem ég lék var Snæfríður Íslandssól í Íslandsklukkunni.“ Í einkalífinu kveðst Bjarnfríður hafa verið heppin nema hvað hún hafi misst manninn sinn snemma. Hann hét Jóhannes Finnsson og lést af slysförum við sjómennsku árið 1974. Börnin urðu fjögur, Steinunn, Eyjólfur, sem aðeins varð sólarhringsgamall, Leó og Hallbera. „Börnin fóru menntaveginn, tvö eru kennarar og eitt leikari og rithöfundur,“ segir Bjarnfríður. „Ég held því hiklaust fram að fólk eins og ég, sem kem úr verkalýðsstétt, hafi lagt sig fram um að mennta sín börn svo þau gætu sinnt vandasamari verkum.“ Bjarnfríður kveðst líta með ánægju yfir farinn veg. „Lífið hefur farið vel með mig að flestu leyti og ég held ég hafi líka svolítið unnið að því.“
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira