„Ég hitaði bara upp í hvelli og gólaði síðan eitthvað“ Baldvin Þormóðsson skrifar 25. júlí 2014 19:00 Eygló mun læra svonefnda tónlistarþerapíu við Berklee. mynd/aðsend „
Mig langaði alltaf að verða tónskáld þegar ég var yngri,“ segir Eygló Höskuldsdóttir. „Síðan kom dálítið upp á í tónlistarnáminu sem varð til þess að ég ákvað að hætta við þann draum.“ Hún fór í kjölfarið að læra sálfræði í Háskóla Íslands en fór síðan í tónleikaferðalag með Björk Guðmundsdóttur og þar blossaði tónlistaráhuginn upp aftur. „Þá hugsaði ég með mér að tónlistarþerapía væri frábær millivegur þess að vera tónskáld og sálfræðingur.“ Eygló sótti þá um í tónlistarþerapíu við Berklee College of Music en skólinn þykir einn besti tónlistarskóla Bandaríkjanna. „Síðan þegar mér var boðið í prufu þá hélt ég að ég væri að fara að spila á píanó,“ segir Eygló sem komst að því fimm mínútum fyrir prufuna að hún ætti ekki að spila á píanó heldur syngja. „Ég hitaði bara upp í hvelli og gólaði síðan eitthvað,“ segir Eygló og hlær. Hún fékk síðan bréf tveimur mánuðum seinna þess efnis að hún hefði komist inn. „Þá tók við meira vesen, þar sem ég á ekki sjö milljónir á ári í fjögur ár,“ segir hún en skólagjöldin eru svimandi há. Eygló hefur því verið að búa til hárbönd og annan söluvænan varning ásamt móður sinni sem hægt er að nálgast á Facebook-síðunni Eygló fer í skóla. „Síðan er stóri Eyglóar-dagurinn 10. ágúst í Langholtskirkju,“ segir Eygló en þar heldur hún nokkurs konar styrktar- og kveðjutónleika klukkan 13.00.
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Diljá Mist skilin Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Diljá Mist skilin Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Sjá meira