Þurfti leyfi Seðlabankans til að borga 1800 króna bók Kjartan Atli Kjartansson skrifar 7. maí 2014 16:12 Kristján E. Guðmundsson. Vísir/aðsent
Kristján E. Guðmundsson frá Akranesi óraði ekki fyrir því að hann þyrfti að sækja um leyfi til Seðlabankans þegar hann keypti sér bók frá sænskri fornbókasölu. „En þannig var það nú samt,“ segir hann hlæjandi. „Þannig er mál með vexti að ég pantaði mér bók á sænska fornbókavefnum Bokbörsen. Þar sá ég bók eftir Ekvist nokkurn, bók sem mig hafði lengi langað í. Ég sá að hún kostaði ekki nema 100 krónur sænskar, svo ég pantaði hana bara strax,“ útskýrir Kristján og heldur áfram: „Bokbörsen er ekkert ósvipuð Bland.is. Þetta er svona vettvangur þar sem bóksalar og hugsanlegir kaupendur geta rætt saman. Kerfið á þessu er nú þannig að fólki er bara treyst til að millifæra inn á bóksalana. Á síðunni er ekki hægt að borga með kreditkortum.“Þurfti að sækja um undanþágu Þegar Kristján fékk bókina senda fylgdi henni reikningur sem þurfti að greiða í banka. „Já, þetta var svona svokallað SWIFT-bankanúmer, til þess að millifæra milli landa,“ bætir hann við og rifjar upp ferðina í bankann: „Nú, ég hélt niður í Landsbanka og ætlaði að ganga frá þessu. Gjaldkerinn segir mér þá að þetta væri nú ekki svo einfalt. Hún útskýrði fyrir mér að ég þurfi að sækja um undanþágu frá Seðlabankanum vegna þess að þetta væru gjaldeyrisviðskipti.“ Kristján segist ekki hafa trúað sínum eigin eyrum. „Ég spurði hana hvort þetta ætti virkilega við um 100 sænskar krónur og hún svaraði því játandi. Hún rétti mér eyðublað sem ég byrjaði að fylla út. Ég spurði hana svo bara fyrir kurteisis sakir hvort þetta tæki nokkurn tíma. Hún svaraði: „Ja, ekki nema tvær vikur.“ Ég hló nú bara að því. Svo bætti hún því við að millifærslan myndi kosta 1600 krónur, sem er næstum því jafn mikið og bókin kostaði.“ Með sendingakostnaði væri hann Kristján því búinn að borga mun meira en tvöfalt verð fyrir bókina.Hætti við „Ég hætti bara við og fór heim. Ég hafði samband við bóksalann og útskýrði málið fyrir honum. Þá kom í ljós að hann var með svokallaðan Paypal aðgang. Þannig að ég gat millifært inn á hann rafrænt, sem er auðvitað miklu betra,“ útskýrir Kristján og hlær „Þetta er alveg ótrúleg saga. Mér finnst þetta vera svo hriplekt kerfi – þessi gjaldeyrishöft. Það er ekkert mál að versla með kortum erlendis, en þegar maður ætlar að borga eitthvað með peningum þarf maður blessun Seðlabankans. Ég er til dæmis nýkominn heim frá Noregi. Þar keypti ég í matinn og borgaði bara með íslensku debetkorti. Það var ekkert mál. Og eins og þegar ég keypti bókina, þá stofnaði ég bara Paypal reikning og lagði inn á manninn. Það tók bara fimm mínútur og var ekkert mál.“
Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Sjá meira