Þurfum sjálfboðaliða inn í daglega starfsemi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. júlí 2014 14:00 „Ég hef líka verið í samstarfi með Rauða krossinum erlendis, hélt til dæmis utan um verkefni Rauða krossins í Reykjavík í Gambíu. Fór í heimsókn til Gambíu en verkefnið var rekið héðan,“ segir Þór. Fréttablaðið/GVA „
Ég þekki ágætlega til hérna. Hef verið starfsmaður Reykjavíkurdeildarinnar í fimm ár en er búinn að vera sjálfboðaliði Rauða krossins í hinum ýmsu verkefnum og stjórnarstörfum síðan 1991,“ segir Þór Gíslason sem nýlega var ráðinn framkvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Upphaflega var það auglýsing í blaði sem dró Þór að samtökunum. „Ég sá auglýst eftir fólki sem væri áhugasamt um að koma að stofnun símaþjónustu fyrir fólk í vanda sem síðar varð Vinalínan. Ég var einn af þeim sem vann forvinnuna og startaði henni. Ætla ekki að eigna mér hana en ég starfaði við hana um tíma og hef ekki náð að slíta mig frá Rauða krossinum síðan.“ Í ungmennastarfinu var Þór líka virkur í Rauðakrosshúsinu í Lækjargötunni og miðbæjarstarfi en mest kveðst hann þó hafa unnið í Húsavíkurdeildinni og sem stjórnarmaður í Rauða krossi Íslands. „Ég hef líka verið í samstarfi með Rauða krossinum erlendis, hélt til dæmis utan um verkefni Rauða krossins í Reykjavík í Gambíu. Fór í heimsókn til Gambíu en verkefnið var rekið héðan,“ lýsir hann. Þór er menntaður M.Sc. í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands og með BA-gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Býst hann við að gera einhverjar breytingar á starfsemi Reykjavíkurdeildarinnar nú þegar hann er orðinn framkvæmdastjóri? „Eflaust verða einhverjar breytingar á starfsháttum. En mín störf og annarra starfsmanna deildarinnar snúast um að framfylgja stefnu stjórnarinnar sem er skipuð sjálfboðaliðum.“ Þór kveðst hafa hug á að efla sjálfboðastarfið. „Rauði krossinn á langa og mikla hefð í sjálfboðastörfum við hin ýmsu verkefni og stjórnun hér á landi en við þurfum að fá sjálfboðaliða inn í daglega starfsemi hreyfingarinnar í meiri mæli en nú er. Þannig er það víða erlendis.“
Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira