Hélt fyrst dansleik 14 ára Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 6. ágúst 2014 12:30 Jón er ánægður með lífið. Hann á fjögur börn og tvö barnabörn, Eld Aron 13 ára og Hebu Rós sem hann fékk í afmælisgjöf fyrir þremur árum. Vísir/Arnþór
Jón Ólafsson er að undirbúa sextugsafmælið í Silfurbergssal Hörpunnar þegar hann er ónáðaður. Hann býr í Hong Kong en er með vatnsfyrirtæki hér á landi svo hann kemur af og til og nú meðal annars vegna tímamótanna. Jón var lengi kenndur við Skífuna en er í seinni tíð oftast titlaður „athafnamaður“, hvernig finnst honum það? „Ég er nú alltaf eitthvað að aðhafast enda þrífst ég best í annríki og þannig hefur það alltaf verið," svarar hann. „Ég held það sé þorsti í að gera eitthvað sem skiptir máli.“ Jón er uppalinn í bítlabænum Keflavík og hóf snemma afskipti af tónlistarstarfsemi. „Fimmtán ára var ég í hljómsveit á Keflavíkurvelli í sex mánuði en komst fljótt að því að ég væri betri í að vinna með listamönnunum en reyna að vera einn af þeim. Þannig að ég fór í umsýslu fyrir tónlistarmenn,“ upplýsir hann. Hann kveðst hafa haldið fyrsta dansleikinn fjórtán ára. „Ég fékk Ungmennafélagshúsið, Ungó, til að halda þar dansleik fyrir 14 ára og eldri og samdi við Pops í Reykjavík um að spila. Þegar strákarnir í Pops komu til Keflavíkur vildu þeir tala við Jón Ólafsson. „Ég er Jón Ólafsson,“ sagði ég. „Láttu ekki svona, við þurfum að tala við Jón Ólafsson,“ sögðu þeir. Ég var náttúrlega bara krakkakvikindi, ekki bara ungur heldur smávaxinn líka, en ég sagði þeim að hafa ekki áhyggjur, þeir fengju borgað, það væri uppselt.“ Þótt Jón hafi ekki alist upp við kaupsýslu var viðskiptavitið kannski í genunum. „Ég þekkti ekkert föðurfólkið mitt en Ingvar Vilhjálmsson, stórútgerðarmaður í Ísbirninum, var afabróðir minn og föðuramma mín systir Arons Guðbrandssonar í Kauphöllinni. Þetta fólk var samt aldrei hluti af mínu lífi.“ Í veislunni í Hörpu í kvöld koma fram margar skemmtilegar hljómsveitir, sumar hafa ekki spilað í 25 ár eins og Brunaliðið sem Jón hóaði saman á sínum tíma og varð gríðarlega vinsælt enda með smelli eins og Alltaf á leiðinni, Einskonar ást og fleiri góða. Þar eru Ragga Gísla og Diddú, Laddi, Maggi Kjartans og Pálmi Gunnars. Jón afbiður sér allar afmælisgjafir en hvetur fólk til að leggja fé í sjóð sem hann stofnaði í tilefni afmælisins. Féð sem safnast fer í gerð brunna í Afríku og veitir fólki vatn. Slóðin á síðuna er: my.charitywater.org/jonolafsson. Hér fyrir neðan er viðtal við Jón sem birtist í Kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Crawford minnist sonarins Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira