Markovic í læknisskoðun hjá Liverpool Kristinn Páll Teitsson skrifar 14. júlí 2014 17:45
Serbneski kantmaðurinn Lazar Markovic gekkst undir læknisskoðun hjá Liverpool í dag og er talið að gengið verði frá kaupnum á honum frá Benfica á næstu klukkutímum. Markovic kvaddi stuðningsmenn Benfica á opinberri Facebook-síðu sinni um helgina. Hinn 20 árs gamli Markovic hefur nú þegar leikið 12 landsleiki fyrir Serbíu en hann var einn af lykilleikmönnum Benfica á tímabilinu. Félagið vann portúgölsku deildina í ár ásamt því að komast í úrslit Evrópudeildarinnar. Markovic verður fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Liverpool í sumar á eftir Rickie Lambert, Adam Lallana og Emre Can en greinilegt er að Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool leggur áherslu á að styrkja hópinn fyrir átökin sem eru framundan. Þá er gert ráð fyrir að félagsskipti Luis Suárez til Barcelona verði endanlega staðfest á næstu dögum en leikmaðurinn ferðaðist til Barcelona í dag. Hann mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum áður en gengið verður frá kaupunum en hann er talinn hafa nú þegar samþykkt samningstilboð Barcelona.
Enski boltinn Tengdar fréttir Tilboð Barcelona í Suárez samþykkt Liverpool staðfesti rétt í þessu að félagið hefði samþykkt tilboð Barcelona í Luis Suárez. Suárez sem er 27 ára hefur samþykkt undir fimm ára samning hjá Barcelona. 11. júlí 2014 11:46 Liverpool að ganga frá kaupum á Markovic Serbeskur kantmaður á leiðinni á Anfield frá Liverpool. 7. júlí 2014 09:00 Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira
Tilboð Barcelona í Suárez samþykkt Liverpool staðfesti rétt í þessu að félagið hefði samþykkt tilboð Barcelona í Luis Suárez. Suárez sem er 27 ára hefur samþykkt undir fimm ára samning hjá Barcelona. 11. júlí 2014 11:46
Liverpool að ganga frá kaupum á Markovic Serbeskur kantmaður á leiðinni á Anfield frá Liverpool. 7. júlí 2014 09:00