Lífið

Victoria's Secret-fyrirsæta giftir sig

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Victoria's Secret-fyrirsætan Lindsay Ellingson gekk að eiga unnusta sinn, Sean Clayton, við hátíðlega athöfn í Suður-Karólínu á laugardaginn.

Um hundrað manns voru viðstaddir herlegheitin en Lindsay klæddist sérsaumuðum brúðarkjól frá Sophie Theallet. Sean var hins vegar í jakkafötum frá Tom Ford.

Lindsay birti mynd af sér og Sean á Instagram eftir brúðkaupið og lofaði fleiri brúðkaupsmyndum á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.