Lífið

Gifti sig í laumi eftir þriggja mánaða samband

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Breska söngkonan Cheryl Cole gekk að eiga franska kærasta sinn Jean-Bernard Fernandez-Versini í síðustu viku. 

Þetta tilkynnti Cheryl á Instagram og á heimasíðu sinni.

„Ég ræði yfirleitt ekki mitt einkalíf en til að þagga niður allar getgátur langar mig að deila hamingjufréttunum með ykkur...Jean-Bernard og ég giftum okkur 7/7/14,“ skrifar Cheryl á Instagram við mynd af giftingarhringnum.

„Við erum hamingjusöm og spennt fyrir því að halda áfram og lifa lífi okkar saman,“ bætir hún við.

Söngkonan byrjaði með Jean-Bernard fyrir þremur mánuðum. Cheryl var áður gift knattspyrnumanninum Ashley Cole en þau skildu árið 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.