Innlent

Þurfti að stökkva vegna fundar tengdum fundi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigmundur Davíð á faraldsfæti í Alþingishúsinu í gær.
Sigmundur Davíð á faraldsfæti í Alþingishúsinu í gær. Vísir/Vilhelm
Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru allt annað en sáttir við að forsætisráðherra hafi yfirgefið þingfund fyrr en þeir reiknuðu með í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynnti skýrslu sína um skuldaleiðréttingu á fjórða tímanum í gær en varð skömmu síðar frá að hverfa.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar, segir þingheim hafa verið vel meðvitaðan um að fyrirhugaður var fundur ráðherra með samninganefnd ASÍ klukkan 17 í gær. Sigmundur hafi hins vegar þurft að yfirgefa Alþingi um 45 mínútum á undan áætlun.

„Það sem gerðist var að hann þurfti óvænt að yfirgefa Alþingi fyrr í tengslum við fundinn,“ segir Jóhannes Þór. Hann hafi komið þeim upplýsingum áleiðis til forseta Alþingis um leið og það varð ljóst. „Þetta voru óviðráðanlegar ástæður.“ Minnir Jóhannes á að fólk hafi komið utan af landi til að mæta á þennan löngu fyrirfram skipulagða fund.

Sjá einnig: Össur segir Sigmund Davíð hafa sýnt þinginu hroka

Þingmenn stjórnarandstöðunnar brugðust illa við því að forsætisráðherra yfirgæfi fundinn fyrr en ætlað var. Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði formenn flokkanna hafa rætt við forseta Alþingis fyrir þingið og verið upplýst um að forsætisráðherra yrði fjarverandi síðari hluta umræðunnar. Hann hafi hins vegar yfirgefið svæðið að lokinni framsögu sinni.

„Ekki í fyrsta sinn flytur hann sína framsögu og gengur svo úr þingsal. Tekur ekki þátt í skoðanaskiptum,“ sagði Svandís.





Helgi Hjörvar, Katrín Júlíusdóttir, Birgitta Jónsdóttir, Róbert Marshall og Guðmundur Steingrímsson tóku í kjölfarið til máls og skoruðu á forseta að fresta þingfundi.

„Auðvitað er ekki hægt að ræða mál ef framsögumaður málsins, sá sem mælir fyrir skýrslunni, er bara farinn. Þetta er bara heimskulegt,“ sagði Guðmundur Steingrímsson sem steig í ræðustól klukkan 16:31.





„Hann hóf ræðu sína á að lýsa yfir mikilli tilhlökkun að hann hlakkaði rosalega til að eiga þennan orðastað við stjórnarandstöðuna á þessum mikla gleðidegi. Svo fer hann bara.“

Einar K. Guðfinsson, forseti Alþingis, frestaði þingfundi klukkan 16:48. Framsögu Sigmundar Davíðs má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×