Salmond segir Skota hafa verið blekkta Jón Júlíus Karlsson skrifar 21. september 2014 12:09 Alex Salmon ætlar að hætta sem fyrsti ráðherra Skotlands. VÍSIR/Getty Images
Fyrsti ráðherra Skota segir að þeir sem kusu nei og gegn því að þjóðin tæki upp sjálfstæði frá Bretlandi hafi verið blekktir. Meirihluti kjósenda kaus gegn sjálfstæði Skotlands í síðustu viku. Alex Salmond, fyrsti ráðherra Skotlands, sakar forystumenn þriggja meginflokka Bretlands um að blekkja kjósendur með síðbúnum loforðum skömmu fyrir kosningar. Salmond segir að loforð breskra stjórnmálamanna um aukin völd Skotlands án sjálfstæðis hafi unnið kosningarnar. Kjósendur í Skotlandi höfnuðu sjálfstæði á fimmtudag. 55% sögðu nei við sjálfstæði en 45% sögðu já. David Cameron forsætisráðherra, Nick Clegg aðstoðarforsætisráðherra, og Ed Miliband leiðtogi verkamannaflokksins tóku virkan þátt í kosningabaráttunni og lofuðu að völd Skotlands yrðu aukin að loknum þingkosningum í Bretlandi á næsta ári - sama hvaða ríkisstjórn sæti við stjórnvölin. Salmond sakar forystumenn breskra stjórnmála um að ganga að baki orða sinna um leið og atkvæðagreiðslunni lauk. Salmond segir að kynna hafi átt tillögu um að auka völd Skota fyrir breska þinginu strax að loknum kosningum á föstudag en það mun dragast á langinn þar sem forystumenn meginflokkanna hafa ekki náð saman um hvernig eigi að meðhöndla málið. Talsmaður forsætisráðuneytisins í Downings strætis vísar orðum Salmond um blekkingar á bug og leggur áherslu á að ríkisstjórnin standi fyllilega að baki þeim loforðum um að Skotland fái aukin völd. Skýr tímarammi sé í kringum málið og drög að lagafrumvarpi verði gefið út í janúar. Salmond tilkynnti á föstudaginn að hann hyggðist segja af sér sem forsætisráðherra í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. Hann hyggst einnig segja af sér sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins.
Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Sjá meira