Verð á hrámjólk verður það sama fyrir alla Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. september 2014 17:27 Samkeppniseftirlitið sektaði MS í liðinni viku um 370 milljónir króna vegna brots á samkeppnislögum. Vísir/Stefán
Mjólkursamsalan hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að verð á ógerilsneyddri mjólk verði það sama til allra aðila frá og með mánudeginum 29. september. Skiptir þá ekki mál hvort um sölu til óskyldra aðila er að ræða eða til fyrirtækja sem eru í framleiðslusamstarfi með MS. Í yfirlýsingunni kemur fram að um varúðarráðstöfun sé að ræða meðan á áfrýjunarferli stendur vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um að MS hefði brotið samkeppnislög og skyldi greiða 370 milljónir í sekt Breyting á verðlagningu felur þó ekki í sér „viðurkenningu á málflutningi eða niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem Mjólkursamsalan hafnar,“ eins og segir orðrétt í yfirlýsingunni en hana má sjá í heild sinni hér að neðan.Verð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli verður hið sama frá og með mánudeginum 29.september í öllum viðskiptum MS hvort sem um er að ræða sölu til óskyldra aðila eða miðlun á mjólk til fyrirtækja í framleiðslusamstarfi með MS. Um er að ræða varúðarráðstöfun, sem gildir meðan á áfrýjunarferli stendur eftir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem kynnt var í síðustu viku. Í henni felst engin viðurkenning á niðurstöðu eftirlitsins í málinu sem verður vísað til til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.Kjarni málsins er deila um með hvaða hætti búvörulög heimila fyrirtækjum í nánu eigna- og framleiðslusamstarfi að miðla á milli sín verðmætum þegar þau stilla saman framleiðslukerfi sín til að ná fram hámarkshagræðingu. Á grundvelli búvörulaganna 2004 hafa Mjólkursamsalan, Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélög gert þetta með því að miðla hráefni milli sín á innkaupsverði án álagningar. Um þetta er nú deilt eftir að fram kom ný túlkun Samkeppniseftirlitsins á búvörulögum, sem hafa verið í gildi hér í 10 ár.Meðan ekki hefur verið skorið úr um gildi þessarar nýju túlkunar hafa fyrirtækin ákveðið að nota ekki þetta fyrirkomulag og gera upp þetta samstarf á öðrum sviðum framleiðslu einstakra mjólkurafurða, geymslu og dreifingu þeirra en í verðlagningu á mjólk. Þetta er gert í varúðarskyni vegna réttarstöðu á tímabili áfrýjunarinnar. Þetta þýðir að á meðan málinu stendur verður reikningsfært hráefnisverð milli aðila í samstarfinu hið sama og til óskyldra aðila sem standa utan samstarfs. Það verð er í samræmi við ákvörðun verðlagsnefndar búvöru um verð fyrir ógerilsneidda mjólk í lausu máli sem tók gildi 1. apríl 2014. Innifalið í því verði er hlutdeild í áföllnum kostnaði við flutning og dreifingu, rannsóknir, gæðaeftirlit og sameiginlegan kostnað. Þetta verð gildir frá og með mánudeginum 29. september 2014 í öllum viðskiptum MS á þessum markaði.Sem fyrr segir felur þessi breyting ekki í sér viðurkenningu á málflutningi eða niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem Mjólkursamsalan hafnar.
Tengdar fréttir „Fáránlegt að MS sé undanþegin samkeppnislögum“ Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er fús til að taka umræðu um búvörusamningana á Alþingi og segist alls ekki hræddur við þá umræðu. 25. september 2014 07:00 Vill breyta lögum verði úrskurður Samkeppniseftirlits staðfestur Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðherra neytendamála, telur rétt að breyta lögum ef úrskurður Samkeppniseftirlitsins verður staðfestur fyrir dómstólum. Stríðir gegn almennri hugsun um hvernig samkeppni á að virka, segir ráðherrann. 26. september 2014 07:00 Ætlar ekki að biðja neytendur afsökunar strax "Mjólkursamsalan á allt undir velvild og tryggð og trúnaði við neytendur. Ef fyrirtækinu verður á í messunni þá vitaskuld biðst það afsökunar. Við teljum hins vegar að Samkeppnisefitrlitið hafi í þessu máli farið villu vegar,“ segir Einar Sigurðsson forstjóri MS. 25. september 2014 18:03 Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir. 23. september 2014 12:57 Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS). 22. september 2014 20:11 MS beggja vegna borðsins Tveir frá MS sitja í sex manna opinberri verðlagsnefnd búvara sem lögum samkvæmt ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu og tekur einnig á móti kvörtunum frá þeim sem starfa í greininni. 26. september 2014 19:06 Þykir ekkert að tvöföldu verði Þess er minnst nú að fyrir tíu árum varð Alþingi að vilja þáverandi landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústssonar, og samþykkti að afurðastöðvum í mjólkuriðnaði væri heimilt að gera samninga sín á milli um verðtilfærslu milli tiltekinna afurða þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga. 25. september 2014 14:00 „Eðlilegt að Mjólka greiddi hærra verð“ Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar, telur eðlilegt að fyrirtæki utan MS borgi hærra verð fyrir mjólkina en aðrir aðilar á markaði. "Fullyrði að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er byggður á misskilningi,“ segir Egill. 25. september 2014 07:00 MS sektað um 370 milljónir króna Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu. 22. september 2014 11:40 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira
„Fáránlegt að MS sé undanþegin samkeppnislögum“ Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er fús til að taka umræðu um búvörusamningana á Alþingi og segist alls ekki hræddur við þá umræðu. 25. september 2014 07:00
Vill breyta lögum verði úrskurður Samkeppniseftirlits staðfestur Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðherra neytendamála, telur rétt að breyta lögum ef úrskurður Samkeppniseftirlitsins verður staðfestur fyrir dómstólum. Stríðir gegn almennri hugsun um hvernig samkeppni á að virka, segir ráðherrann. 26. september 2014 07:00
Ætlar ekki að biðja neytendur afsökunar strax "Mjólkursamsalan á allt undir velvild og tryggð og trúnaði við neytendur. Ef fyrirtækinu verður á í messunni þá vitaskuld biðst það afsökunar. Við teljum hins vegar að Samkeppnisefitrlitið hafi í þessu máli farið villu vegar,“ segir Einar Sigurðsson forstjóri MS. 25. september 2014 18:03
Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir. 23. september 2014 12:57
Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS). 22. september 2014 20:11
MS beggja vegna borðsins Tveir frá MS sitja í sex manna opinberri verðlagsnefnd búvara sem lögum samkvæmt ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu og tekur einnig á móti kvörtunum frá þeim sem starfa í greininni. 26. september 2014 19:06
Þykir ekkert að tvöföldu verði Þess er minnst nú að fyrir tíu árum varð Alþingi að vilja þáverandi landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústssonar, og samþykkti að afurðastöðvum í mjólkuriðnaði væri heimilt að gera samninga sín á milli um verðtilfærslu milli tiltekinna afurða þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga. 25. september 2014 14:00
„Eðlilegt að Mjólka greiddi hærra verð“ Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar, telur eðlilegt að fyrirtæki utan MS borgi hærra verð fyrir mjólkina en aðrir aðilar á markaði. "Fullyrði að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er byggður á misskilningi,“ segir Egill. 25. september 2014 07:00
MS sektað um 370 milljónir króna Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu. 22. september 2014 11:40