Heilsa

Umgjörð um náttúrulegt kraftaverk

Guðni Gunnarsson skrifar
Mynd/getty
Fyrst er að finna heimildina til velsældar, hleypa henni út úr hjartanu og inn í allan líkamann og allt lífið. Að fara úr dýrslegum viðbrögðum yfir í valið far – yfir í ferli; markviss ferli sem styðja við ljós hjartans. Til að hleypa sér inn í fulla framgöngu þarf tvennt að koma til:

Skýr, heitbundin og kröftug sýn á hvað það er sem þú vilt skapa.

Hjarta sem er opið fyrir gjöfunum sem geta komið frá heiminum og haft áhrif á þessa sýn.

Svo er það umgjörðin um kraftaverkið. Hana sköpum við og staðfestum, aftur og aftur, með einlægum vilja. Það kann að hljóma órómantískt eða laust við hjartnæma hugsjón að ætla að útbúa umgjörð um kraftaverk (við viljum jú að allt svoleiðis komi af sjálfu sér, eins og ástin) en máttug horfumst við í augu við staðreyndirnar og forsögu okkar sjálfra og sjáum að til að brjóta vanann á bak aftur þurfum við að skapa ný ferli.

Kíkjum inn í orðið.
 Kraftaverk? Hvað segir það okkur? Kraft-í-verk? Eða kraftur að verki?

Kraftaverk. Máttur í vilja. Máttur að verki.

Kraftaverk er viðhorfsbreyting.
 Í sinni fallegustu birtingarmynd er kraftaverk einfaldlega viðhorfsbreyting.

Vissulega er þetta merking orðsins – en okkur er alltaf tamt að líta á kraftaverk sem utanaðkomandi afl, eitthvað sem guð eða æðri máttur eða hendingin kemur til leiðar og hefur ekkert með okkur að gera. En hvað ef við ákveðum sjálf að setja kraft í verkið? Það er hægt með vel skipulagðri umgjörð, um leið og við höfum gefið okkur heimild til að lifa í velsæld.

Sleppum því gamla hugmyndakerfinu sem
 segir að rómantíska ástin gerist af sjálfu sér,
að kraftaverkið sé eitthvað sem við þiggjum;
 sleppum því að festast í „ég-er-eins-og-ég-er“
hugsunarhættinum og veljum að gera breytingar
 á lífi okkar, með krafti í verki. Göngum inn í nýja 
tilvist þar sem við viðurkennum að mátturinn er innra með okkur; að það er víst róman- tískt að stuðla með beinum hætti að umbreytingu okkar sjálfra.

Jafnvel þótt það feli í sér skipulag ... en þegar ég skipulegg er ég svo leiðinlegur og grár! Orðið kallar fram í hugann alls kyns hversdagsleg verkefni þar sem ég verð drepleiðinlegur. Skipulag? Getum við notað það orð? Skipulagt kraftaverk? Hvað með vitandi kraftaverk? Sem er stutt af skipulögðu ferli?

Viljandi kraftaverk. 


Það er það sem við gerum til að finna aftur valdið yfir eigin lífi.

Við setjum kraft í verkið með vitund.


Viljandi kraftaverk.

Kærleikur,

Guðni


Tengdar fréttir

Að brjóta kubbakastalann – með bros á vör

Það er ekki sársaukalaust
að byrja á nýjum forsendum þegar maður er orðinn "þroskaður einstaklingur með lífsreynslu“. Það er engum manni auðvelt að vakna upp eftir 20–50 ár sem voru byggð á mis­ skilningi, höfnun og forsendum vansældar.

"Hef ég sagt þér í dag ...?“

Á meðan ég byrja að leggja drög að því hvernig ég geti komið henni í skilning um hversu óþægilegt þetta sé átta ég mig á því að ég er á fullri ferð inn í að kenna henni um mína eigin vankanta og skort á ást á sjálfum mér.

Hjartað er eini heilarinn

Ef ég mætti gefa þér ráð í aðeins þremur orðum myndi það hljóma svona: "Segðu alltaf satt.“ Og ef ég mætti bæta nokkrum orðum við ráðið myndi ég segja: "Hvað sem tautar og raular.“

Hugurinn ber þig hálfa leið – en hjartað alla

Okkur er tamt að vilja verja hjartað og slá um það varnarhjúp. Í reynslubankanum eru fjölmörg sönnunargögn sem benda til þess að heimurinn sé grimmur og annað fólk sé líka grimmt

Gildi er valið og ígrundað lífsviðhorf

Þú átt þér ekki eigin gildi fyrr en þú sest yfir þau viðhorf sem þú hefur um lífið og tilveruna og tekur ákvörðun um það hvort þau henti þér.








×