Flugmenn neyddust til að lenda því farþegar rifust um hallandi sætisbak Kjartan Atli Kjartansson skrifar 26. ágúst 2014 14:50 Flugmenn töldu sig tilneydda að lenda vélinni í Chicago.
Flugmenn United Airlines neyddust til að lenda flugvél sem þeir flugu frá Newark til Denver vegna rifrildis tveggja farþega um hvort annar mætti halla sætisbaki sínu. Farþegarnir voru í sætum sem voru með betra fótarými en á almennu farrými. Atvikið átti sér stað þegar flugvélin var skammt frá Chicago. Upphaf þess má rekja til þess að maður læsti tæki sem kallast Hnjávarinn (eða Knee-defender á ensku) í sætið fyrir framan sig. Hnjávarinn kemur í veg fyrir að hægt sé að halla sætisbökum og er ólöglegt. Kona sem sat fyrir framan manninn ætlaði að halla sæti sínu. Hún tók eftir því að maðurinn hafði læst Hnjávaranum við sætið og reiddist mjög, eins og kemur fram í umfjöllun Washington Post. Flugfreyjur reyndu að skakka leikinn en maðurinn neitaði að fjarlægja Hnjávarann af sæti konunnar. Konan skvetti þá vatni í andlit mannsins. Þegar flugmennirnir fréttu af þessum átökum töldu þeir nauðsynlegt að lenda vélinni í Chicago. Þegar þangað var komið var báðum farþegunum fylgt frá borði. Lögreglan var kölluð til en hvorugur farþeganna var handtekinn. Hnjávarinn var fundinn upp af hinum 191 sentímetra háa Ira Goldman fyrir um áratug. Farþegar sem nota tækið læsa því í sætinu fyrir framan sig sem kemur í veg fyrir að sá sem situr fyrir framan geti hallað sætisbaki sínu. Tækið kostar rúmlega 2500 krónur en óheimilt er að nota það í flugi.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Sjá meira