Skilnaðurinn mjög sársaukafullur Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 15. júlí 2014 17:30 vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Richard Marx er búinn að senda frá sér nýja plötu sem heitir Beautiful Goodbye en hann segir plötuna þó ekki fjalla um skilnað sinn við Dirty Dancing-stjörnuna Cynthiu Rhodes eins og titillinn gefur til kynna. „Fólk hélt, sérstaklega út af nafni plötunnar, að platan fjallaði um sambandsslit. En það er misskilningur. Hún snýst frekar um að fagna rómantík og tælingu,“ segir Richard í samtali við tímaritið People. Richard tilkynnti að hann væri skilinn við eiginkonu sína til 25 ára í apríl síðastliðnum en hjónin höfðu verið skilin að borði og sæng síðan í júlí á síðasta ári.Richard og Cynthia.„Þetta hefur verið sársaukafullur tími. En ég vil ekkert sérstaklega grafa mig í lögum um þetta af virðingu. Ég elska og virði fyrrverandi eiginkonu mína og vil ekki sökkva mér ofan í lagasmíðar. Það þýðir ekki að ég eigi aldrei eftir að gera það en ég fann að ég vildi ekki skrifa um þetta. Ég vildi skrifa um eitthvað jákvæðara,“ bætir Richard við. Hann er hvað þekktastur fyrir ballöður á borð við Right Here Waiting og Hold On to the Nights en hann segir Beautiful Goodbye vera frábrugðna fyrri verkum. „Þessi nýju lög eru meira um kynlíf. Það var gaman að skrifa um það. Það er eitthvað dularfullt við dans á milli tveggja einstaklinga, sérstaklega á frumstigum hugsanlegs ástarsambands þegar fólk fer í hring um hvort annað og reynir að átta sig á hvert öðru,“ segir Richard.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Costanza á klakanum Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira