10 frábær íslensk myndbönd á Youtube Kristjana Arnarsdóttir skrifar 2. júlí 2014 14:00
Íslendingar eiga líkt og aðrar þjóðir mörg einstaklega skemmtileg innslög á Youtube. Lífið tók saman tíu stórskemmtileg myndbönd sem kitla hláturtaugarnar.Logi Bergmann átti í stökustu vandræðum með framburðinn á forseta Túrkmenistans, Gurbanguly Mälikgulyýewiç Berdimuhamedow. Brynhildur Ólafsdóttir, samstarfskona Loga, barðist svo við hláturinn í inngangi næstu fréttar. Íþróttafréttamaðurinn Adolf Ingi Erlingsson tók viðtal við íshokkíkappann Aron Levý Stefánsson og vissi bókstaflega ekkert hvað hann ætlaði að spyrja hann að. Aron hafði ekki átt góðan dag í marki sinna manna og var því ekki beint að nenna þessu viðtali eins og sést vel. Stefán Karl Stefánsson leikari braut glas í beinni útsendingu í viðtali hjá Elsu Maríu Jakobsdóttur í Kastljósi árið 2009. Elsa María bendir Stefáni góðfúslega á að nú sé ekki hægt að klippa enda um beina útsendingu að ræða. Stefán Karl lætur þetta ekkert á sig fá eins og sést í myndbandinu. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður RÚV missir röddina í beinni útsendingu kvöldfréttatímans. Hann gerir góða tilraun til þess að lesa innganginn þrátt fyrir kvefið en áhorfendur eru eflaust flestir búnir að missa þráðinn þegar lestrinum er lokið. „It‘s great, it‘s game game!“ Stressaður íþróttafréttamaður tekur viðtal við körfuknattleikskappann Nick Bradford eftir sigurleik Keflavíkur. Hver man ekki eftir Villa sem kepptist um að komast í Bandið hans Bubba? Internetið gleymir honum allavega aldrei. Páll Arason, sem að öllum líkindum er þekktastur fyrir það að hafa gefið Hinu ízlenska reðasafni sitt allra heilagasta eftir fráfall hans, er í viðtali hjá Johnny National í sjónvarpsþættinum Íslensk kjötsúpa. Páll er ekki parsáttur við þær spurningar sem Johnny lætur flakka og á endanum gengur hann bálreiður út. Kristinn A. Kristmundsson, öllu betur þekktur sem Kiddi Vídjófluga, sló í gegn í eftirminnilegu viðtali í Dagsljósi RÚV árið 1992 þar sem hann sagði þjóðinni frá vídjóleigunni sinni, útfararþjónustunni og miklum áhuga sínum á diskódansi. Útvarpsmaðurinn Andri Freyr prófar stafrænt stýri í Kastljósi. Í fyrra skiptið er hann allsgáður og gengur aksturinn nokkuð vel. Þegar hann er kominn með nokkra kalda í blóðið verður viðbragðið öllu verra eins og sjá má í þessu eftirminnilega myndskeiði. Ingvi Hrafn Jónsson átti líklega ekki von á því að jarðskjálfti upp á 6,2 á Richter myndi bresta á í beinni útsendingu Hrafnaþings á ÍNN árið 2008. Ingvi veltir því fyrir sér hvort um stóra Suðurlandsskjálftann sé að ræða og segir í lokin að hann sé alveg skíthræddur.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira