Heilsa

Ofurskot

Rikka skrifar
Ofurskot
Ofurskot Mynd/skjáskot

Ég er óskaplega hrifin af því að fá mér ofurskot á morgnana. Oftast fæ ég mér engifer með sítrónu og kókosvatni en þegar ég kemst í ferskt túrmerik þá smelli ég því með í skotið. Túrmerik er bólgueyðandi eins og engiferið og hefur góð áhrif á meltinga- og ónæmiskerfið. Báðar ræturnar hafa einni hreinsandi áhrif á líkamann og auka á hressleikann. Ég bæti svo einu hráu hvítlauksrifi útí en það eykur enn frekar á hollustuna. Ég skelli öllu hráefninu saman í blandara en ekki djúsvél. Með því fæ ég líka trefjarnar úr rótunum.

Ofurskot

5 cm túrmerikrót, afhýdd

5 cm engiferrót, afhýdd

1 hvítlauksrif

1 tsk hunangs

2 msk sítrónusafi

vatn eða kókosvatn eftir smekk (u.þ.b) 200 ml

Blandið öllu vel saman og bjóðið fjölskyldunni upp á eitt stykki ofurskot. Blandan geymist í 2 daga í lokuðum umbúðum í ísskáp.








×