Níutíu prósent gagna voru viðkvæmar trúnaðarupplýsingar Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. júlí 2014 17:30 Höfuðstöðvar NSA í Maryland. Vísir/AFP
Í níu af hverjum tíu tilfellum voru gögn sem Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, safnaði með rafrænum hætti persónuupplýsingar venjulegs fólks sem hafði engin tengsl við skipulögð glæpasamtök. Í mörgum tilvikum var um að ræða viðkvæmar trúnaðarupplýsingar eins og um heilsufar fólks eða trúar- og stjórnmálaskoðanir þess. Nítíu prósent þeirra sem urðu fyrir því að Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, fylgdist með netnotkun þeirra með rafrænum eftirlitsbúnaði á tilteknu tímabili voru venjulegir internetnotendur sem höfðu engin tengsl við skipulögð glæpasamtök og áttu ekki að vera undir eftirliti, að því er fram kemur í Washington Post. Umfjöllun blaðsins er afrakstur fjögurra mánaða rannsóknar blaðsins á gögnum frá bandaríska uppljóstraranum Edward Snowden. Stór hluti þeirra upplýsinga sem NSA safnaði um netnotkun venjulegs fólks var varðveittur þótt upplýsingarnar hefðu enga þýðingu fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Washington Post skoðaði 160 þúsund tölvupósta og smáskilaboð og 7.900 skjöl frá 11.000 netnotendum sem NSA safnaði upplýsingum um frá 2009 til 2012. Í níu af hverjum tíu tilvikum voru viðkomandi netnotendur venjulegt fólk. Að sögn Washington Post er mjög mikið af gögnunum viðkvæmar trúnaðarupplýsingar eins og um ástarsambönd fólks, geðheilbrigðisvandamál, fjárhagsupplýsingar og stjórnmála- og trúarskoðanir þess. Ástæða þess að NSA safnaði svo mikið af upplýsingum um venjulegt fólk er sú að í mörgum tilvikum var upplýsingum safnað um einstaklinga sem höfðu lítil eða fjarlæg tengsl við þá sem fylgst var með hverju sinni. Ef sá sem fylgst var með skrifaði á spjallborð á vefsvæði á netinu var upplýsingum safnað um alla þá sem rituðu skilaboð á umrætt spjallborð og einnig um þá sem fóru þangað inn til að lesa skilaboð en tóku ekki þátt í neinum samræðum. NSA aflaði gagna meðal annars með forritum sem kallast PRISM, sem sækir upplýsingar frá Yahoo, Microsoft, Facebook, Google og fimm öðrum leiðandi internetfyrirtækjum vestanhafs og Upstream sem safnar símtölum og rafrænum gögnum gegnum fjarskiptanet.
Mest lesið Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Fleiri fréttir Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Sjá meira