Heilsa

Sanngjörn sambandsslit?

sigga dögg kynfræðingur skrifar
Sambandsslit eru oft sár en geta verið lærdómsrík
Sambandsslit eru oft sár en geta verið lærdómsrík Mynd/Getty
Leikkonan Gwyneth Paltrow og söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, Chris Martin, tilkynntu nýverið að þau séu skilin.

Þetta væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að fyrir skilnaðinn sóttu þau fimm vikna námskeið hjá sambandsráðgjafanum Kathrine Woodward Thomas um hvernig megi skilja á meðvitaðann hátt (e. consious uncoupling).

 

Nýjustu fregnir herma að Jay Z og Beyoncé séu nú í ráðgjöf hjá fyrrgreindum ráðgjafa. Það er sérstaklega áhugavert í ljósi frétta síðastliðinna vikna af þeim skötuhjúum.

 

Meðfylgjandi myndband lýsir þessari ráðgjöf nokkuð ítarlega og gott ef þetta sé ekki eitthvað sem flestir mættu taka sér til fyrirmyndar. Það væri betra fyrir allt og alla ef sambandsslit færu fram í sátt og samlyndi. Fólk myndi læra af mistökum sambandsins, fá að ganga í burtu með jákvæðar og góðar minningar og vera heilt til að fara inn í nýtt samband með nýjum maka.








×