Birgir Leifur mætti í fyrsta sinn í sumar og vann Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. júní 2014 16:31 Birgir Leifur Hafþórsson varð Íslandsmeistari í fyrra. Vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG bar sigur úr býtum á Símamótinu í golfi, þriðja móti Eimskipsmótaraðarinnar, sem kláraðist á Hamarsvelli í Borgarnesi í dag. Birgir Leifur var að keppa á sínu fyrsta móti á Eimskipsmótaröðinni í sumar og gerði sér lítið fyrir og vann það eftir sveiflukenndan lokahring. Hann spilaði lokahringinn á pari vallarins, en Birgir Leifur fékk fjóra fugla og fjóra skolla. Hann lauk leik í heildina á fimm höggum undir pari.Kristján Þór Einarsson úr GKJ, sem var efstur eftir fyrstu tvo dagana, spilaði illa í dag. Hann lék á fimm höggum yfir pari og í heildina á einu höggi undir. Hann hélt þó öðru sætinu. Birgir Leifur var með tveggja högga forystu fyrir lokaholuna en fékk þar tvöfaldan skolla. Það kom ekki að sök því Kristján Þór fékk fjórfaldan skolla og missti af tækifæri til að vinna mótið.Aron Snær Júlíusson úr GKG endaði í þriðja sæti á þremur yfir pari. Félagi hans, Sigmundur Einar Másson, varð í fjórða til fimmta sæti á sex höggum yfir pari ásamt heimamanninum BjarkaPéturssyni.
Golf Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Guðrún Brá efst eftir fyrsta hring í Marokkó Íslensku stelpurnar misstu einn keppnisdag vegna eldingarhættu Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira