Stúlkan lagði sjálf fram myndbandsupptökuna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. maí 2014 20:41 vísir/vilhelm
Stúlkan sem kærði fimm pilta fyrir nauðgun í síðustu viku lagði sjálf fram myndbandsupptöku sem tekin var upp á síma eins ákærða og er upptakan sögð styðja framburð hennar um atvikið. Þetta kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir fimmenningunum en Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurðinn. Munu þeir sitja í gæsluvarðhaldi til 15. maí og er þeim gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Piltarnir eru á aldrinum sautján til nítján ára en stúlkan kærði nauðgunina til lögreglu á miðvikudaginn í síðustu viku. Atvikið mun hafa átt sér stað í Breiðholti aðfaranótt sunnudagsins 4. maí. Í kjölfar kærunnar voru piltarnir handteknir og í greinargerð lögreglu kemur fram að símar þeirra og tölvur hafi verið haldlagðar.Hjálpuðust að við að færa stúlkuna úr fötunum Fimmmenningarnir hafa allir gengist við því að hafa haft samfarir við stúlkuna en segjast hafa talið það hafa verið með hennar samþykki. Kærðu ber þó ekki saman um atburðinn og atburðarás tengda honum. Í greinargerðinni kemur fram að ekki þyki vafi leika á því að piltarnir hafi hjálpast að við að færa stúlkuna úr fötum áður og á meðan þeir höfðu við hana samfarir. Fram kemur að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að fimmmenningunum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en meðal annars eigi eftir að yfirheyra þá frekar, hafa uppi á vitnum og yfirheyra þau. Jafnframt eigi eftir að rannsaka síma- og tölvugögn sakborninganna. Málið sé því enn á það viðkvæmu stigi að hætt sé við því að piltarnir muni torvelda rannsókn málsins gangi þeir lausir.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira