Viðskipti innlent

Færeyingum ekki svarað, Airbus lendir í Keflavík

Kristján Már Unnarsson skrifar
Airbus-þota Færeyinga lenti á Reykjavíkurflugvelli sumarið 2012.
Airbus-þota Færeyinga lenti á Reykjavíkurflugvelli sumarið 2012.
Færeyjaflugið flyst tímabundið til Keflavíkurflugvallar frá og með deginum í dag þar sem íslensk flugmálayfirvöld hafa ekki enn svarað Færeyingum um hvort þeir megi nota nýjustu þotu sína á Reykjavíkurflugvelli. Forstjóri Flugfélags Íslands hvetur til þess að þetta mál  verði afgreitt á faglegum forsendum en ekki pólitískum.

Reykjavíkurflugvöllur hefur verið miðstöð áætlunarflugs til Færeyja allt frá því Flugfélag Íslands hóf reglubundið flug milli landanna á DC-3 vélum árið 1963. Í fyrsta sinn í hálfa öld verður Færeyjafluginu hins vegar sinnt frá Keflavíkurflugvelli þegar 132 sæta þota Airbus-þota Atlantic Airways lendir þar í hádeginu í dag og svo verður að öllum líkindum út febrúarmánuð, að sögn Árna Gunnarssonar, forstjóra Flugfélags Íslands, samstarfsfélags Færeyinga. Ástæðan er sú að færeyska flugfélagið hefur ekki fengið svar við því hvort það megi nota nýju þotuna á Reykjavíkurflugvelli.

Svo virðist sem þetta mál sé heit kartafla í höndum íslenskra yfirvalda miðað við hversu erfiðlega Færeyingum gengur að fá ósk sinni svarað, en málið virðist velkjast milli Isavia, samgöngustofu, innanríkisráðuneytis og jafnvel Reykjavíkurborgar.  Færeyingar hafa undanfarin 25 ár notað 95 sæta British Aerospace-þotur og hafa þetta verið stærstu vélarnar sem nota Reykjavíkurflugvöll að staðaldri. Þeir eiga hins vegar bara eina slíka vél eftir og þar sem hún verður frá vegna viðhalds næstu tvær vikur hið minnsta vilja þeir í staðinn fá að nota Airbus-þotuna.

Þoturnar sem Færeyingar hafa notað síðastliðin 25 ár eru stærstu vélarnar í áætlunarflugi til Reykjavíkur.
Forstjóri færeyska félagsins hefur sagt opinberlega að sú ósk,  að fá að nota nýju þotuna í Reykjavík, hafi fyrst verið sett fram sumarið 2012. Í byrjun síðasta sumars sendi Flugfélag Íslands fyrir hönd Færeyinga minnisblað til Isavia um málið, í september sendi Flugfélagið skriflega ósk en í desemberbyrjun vísaði Isavia málinu á borð ráðherra og óskaði eftir afstöðu innanríkisráðuneytis. 

Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags Íslands, kveðst telja að þetta mál snúist um reglur um flugvernd sem samgöngustofa eigi að afgreiða á faglegum forsendum. Málið eigi ekki að afgreiða á pólitískum forsendum. 

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, segir að svar muni berast í þessari viku. 

Airbus-þota Færeyinga hefur einu sinni lent í Reykjavík, sumarið 2012, í tengslum við vináttulandsleik Íslendinga og Færeyinga í knattspyrnu. Stærri vélar lenda þó af og til í Reykjavík. Boeing 757-vélar Icelandair nota Reykjavíkurflugvöll sem varavöll og hafa einnig lent þar nokkrum sinnum í leiguflugi. Þá lenti Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti,  á Boeing 757 í Reykjavík í heimsókn árið 2004. 

Forstjóri Flugfélags Íslands hefur sagt að allar aðstæður séu á Reykjavíkurflugvelli til að taka á móti Airbus-vél Færeyinga. Brautirnar séu nægilega langar og auk þess sé minni hávaði í Airbus-vélinni en hinni sem Færeyingar nota. Í frétt Stöðvar 2 í desember mátti sjá báðar þessar vélar lenda í Reykjavík.


Tengdar fréttir

Færeyjaflugið á leið til Keflavíkur meðan ekki fæst svar um Airbus

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways og Flugfélag Íslands hafa neyðst til að auglýsa að Færeyjaflugið flytjist til Keflavíkur tímabundið í febrúar þar sem ekkert svar fæst frá íslenskum samgönguyfirvöldum um hvort Færeyingar megi nota Airbus-þotur sínar á Reykjavíkurflugvelli.

Vilja nota Airbus á Reykjavíkurflugvelli

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways óskar eftir því að fá að nota 144 sæta Airbus-þotu í áætlunarflugi sínu milli Reykjavíkur og Færeyja. Þetta yrði stærsta flugvélin sem nýtti Reykjavíkurflugvöll í reglubundnu flugi. Airbus-þota Færeyinga hefur reyndar einu sinni lent á Reykjavíkurflugvelli, í ágústmánuði í fyrrasumar, og fékk þá höfðinglegar móttökur. Færeyska flugfélagið fær aðra Airbus-vél nú í vor og þá þriðju í október. Eldri þotur Færeyinga, af gerðinni British Aerospace, taka 95 farþega, og hafa verið stærstu vélarnar í áætlunarflugi til Reykjavíkur, en Airbus A319 tekur helmingi fleiri, eða 144 farþega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×