Tíska og hönnun

Hrifinn af hátískujökkum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikarinn Matthew McConaughey hefur verið sigursæll á verðlaunahátíðum undanfarnar vikur. Hann vekur alltaf athygli á rauða dreglinum enda óhræddur við að prófa sig áfram í jakkavali.

Á myndinni hér fyrir ofan er Matthew í fjórum mismunandi jökkum. Ef litið er á myndina frá vinstri sést fyrst jakki frá Saint Laurent, því næst hönnun frá Dolce & Gabbana sem hann klæddist á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Við hliðina á honum er Lanvin-jakkinn frá Critics' Choice-verðlaunahátíðinni og á myndinni lengst til hægri er hann aftur í Dolce & Gabbana, nú á SAG-verðlaunahátíðinni.

Það verður því spennandi að sjá hvað Matthew býður uppá á Óskarsverðlaunahátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×