Frumskógarlögmál ræður ríkjum á gatnamótum Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. janúar 2014 21:17
Miklabraut er fjölfarnasta og um leið hættulegasta gatan í Reykjavík samkvæmt tölfræði Samgöngustofu. Þau þrjú gatnamót þar sem flest slys og óhöpp verða eru öll við Miklubraut. Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar eru að springa undan umferð á álagstímum. Þegar græna ljósinu sleppir í vinstri beygju inn á Miklubraut má segja að frumskógarlögmálið taki við. Flöskuháls myndast reglulega og umferð er hleypt í gegn úr gagnstæðri átt og úr austur til vesturs á meðan bílar eru enn fastir á gatnamótunum sjálfum vegna umferðarþunga. Og oft má ekki miklu muna að illa fari. Í þessari frétt má sjá myndir teknar á mesta álagstíma á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar kl. 8:00 í morgun og nokkrum sinnum var aðeins heppni sem réði því ekki urðu árekstrar. Sjón er sögu ríkari í meðfylgjandi myndskeiði. Ef öll gatnamót höfuðborgarsvæðisins eru skoðuð, án tillits til umferðar, árin 2008-2012 þá kemur í ljós að öll hættulegustu gatnamótin eru við Miklubraut. Til þessa hefur fjármagn aðallega staðið nauðsynlegum samgönguúrbótum á Miklubraut fyrir þrifum, samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2. Velta má fyrir sér hvort það verði einhvern tímann hægt að vinda ofan af þessari þróun nema með meiriháttar mannvirkjagerð.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Innlent Fleiri fréttir Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla Sjá meira