Vildi óska þess að það væri minna ofbeldi á Þjóðhátíð Baldvin Þormóðsson skrifar 29. júlí 2014 11:24 Þjóðhátíð hefur alltaf verið vel sótt hátíð. mynd/einkasafn
Nú styttist óðum í verslunarmannahelgina en helgin er þekkt fyrir rosalegan fjölda útihátíða. Fréttablaðið bað því nokkra einstaklinga að viðra skoðanir sínar á útihátíðum og taka afstöðu til þeirra.Bæjarstjóri Akureyrar.Mikilvægt að fara aldrei yfir strikið „Ég er almennt jákvæður gagnvart útihátíðum enda snúast þær um að fólk eigi að skemmta sér saman,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, en hann hefur góða reynslu af útihátíðum og þá sérstaklega á Akureyri þar sem hann hefur starfað sem bæjarstjóri frá árinu 2010. „Það sem skiptir höfuðmáli er að fólk taki tillit hvert til annars, ekki síst til þeirra sem dragast óvart inn í útihátíðarstemninguna eins og margir íbúar Akureyrar.“ Eiríkur Björn segir að útihátíðir eigi sér ríka hefð á Íslandi enda hafa margar íslenskar útihátíðir verið haldnar í tugi ára. „Það er þó mikilvægt að stilla öllu í hóf og fara aldrei yfir strikið.“Bæjarstjóri Vestmannaeyja.Skiptir máli að bera ábyrgð á sjálfum sér „Ég er hlynntur öllum þeim heilbrigðu skemmtunum og útihátíðum sem boðið er upp á,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en sjálfur hefur hann 46 ára reynslu af Þjóðhátíð. „Mín reynsla er sú að það sem skiptir allra mestu máli er að bera ábyrgð á sjálfum sér og sínum. Það hvernig við göngum fram hefur áhrif á okkar velferð og velferð annarra,“ segir bæjarstjórinn. „Fyrir þá sem eru gestkomandi skiptir miklu máli að vera undirbúnir, að kynna sér út á hvað hátíðin gengur og virða hefðir heimamanna. Svo á auðvitað að ganga hægt um gleðinnar dyr.“Kolfinna Kristófersdóttir.Vildi óska þess að það væri minna ofbeldi „Ég er náttúrulega Vestmannaeyingur og hef því farið ansi oft á Þjóðhátíð,“ segir fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir en hún segist líka vilja að hún hefði aldrei farið á neina aðra útihátíð en Þjóðhátíð yfir verslunarmannahelgina. „Ég held samt að upplifunin af Þjóðhátíð sé allt öðruvísi ef þú ert frá Eyjum,“ segir hún. „Öll fjölskyldan mín er þarna og allir gömlu vinirnir þannig að þetta er allt annað en fyrir Reykvíkinga.“ Kolfinna hefur því virkilega gaman af Þjóðhátíðinni og segir að Vestmannaeyjar séu rosalega fallegur staður en hún hefur þó eitt út á hátíðina að setja. „Ég vildi óska þess að það væri ekki svona mikið ofbeldi á hátíðinni.“María Rut.Á erfitt með að breyta til „Ég fór á Mýrarboltann á Ísafirði en ég gisti alltaf í heimahúsi, ég er ekki mikið fyrir svona tjaldferðalög,“ segir María Rut Kristinsdóttir. „Ég hef allavega aldrei farið á Þjóðhátíð, ég er alin upp á Vestfjörðum og þaðan er bara svo langt að fara á Þjóðhátíð,“ segir hún og hlær. „Ég er líka með svona sjúkdóm, ég á mjög erfitt með að breyta til, þannig að það gæti alveg verið partur af því að ég vil alltaf hafa allt í föstum skorðum.“ María Rut segist vera reynslulítil þegar kemur að útihátíðum en hún fór samt á hátíðina Halló Akureyri þegar hún var sautján ára. „Það var brilljant en ég hef eiginlega ekki tjaldað síðan,“ segir hún. „Ég nenni bara ekki að lenda í því að tjaldið mitt rifni niður, þá verð ég svo vonsvikin og leið.“Ágústa Eva.Getur ekki sofið í tjaldi „Ég er engan veginn útihátíðartýpa,“ segir leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir. „Þar sem ég er alin upp er svo heitt að ég get eiginlega ekki verið í miklum kulda,“ segir hún og hlær. „Ég get því ekki sofið í tjaldi og í þau fáu skipti sem ég hef reynt þá hef ég annaðhvort vakið alla nóttina, sofið inni í bíl eða farið grátandi heim.“ Ágústa Eva segir það ekki á dagskránni að tjalda um verslunarmannahelgina heldur ætlar hún að halda sig heima í hlýjunni með fjölskyldunni. Ef hún myndi þó fara eitthvert þá segir hún að Þjóðhátíð í Eyjum yrði líklegast fyrir valinu. „Kærastinn minn er ættaður þaðan og ég hef aldrei farið þannig að ég myndi örugglega mæta þangað og taka þetta alla leið,“ segir leikkonan hlæjandi. „Alveg í þremur kraftgöllum með landa í vasanum og sofa ekki neitt.“
Mest lesið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Fleiri fréttir Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Sjá meira