Vantar sex krabbameinslækna til starfa á Landspítalanum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 20. október 2014 18:53
Skortur á krabbameinslæknum verður til þess að þeir ná ekki að tileinka sér nýja þekkingu og nota ný lyf eins fljótt og áður. Þetta segir yfirlæknir á krabbameinsdeild Landspítalans sem óttast að ef fram heldur sem horfir geti bið eftir meðferð farið að myndast. Ástandið veldur sjúklingum áhyggjum. Íslendingar hafa hingað til verið mjög framarlega á sviði krabbameinslækninga og árangur af meðferðum mjög góður. Læknar hafa hins vegar af því áhyggjur af því að þetta geti farið að breytast þar sem síðustu misseri hefur krabbameinslæknum fækkað verulega hér á landi og erfiðara er því að innleiða nýjar meðferðir og nota ný lyf. Í dag vantar sex krabbameinslækna til starfa á Landspítalanum en þeir eru aðeins átta í dag. „ Á síðustu tíu árum hefur það gerst að okkur hefur fækkað, litlar sem engar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði, það er erfiðara að fá ný lyf, þannig að við erum í raun að dragast aftur úr hinum Norðurlöndunum,“ segir Helgi Sigurðsson er prófessor krabbameinslækninga og yfirlæknir á Landspítalanum. Helgi segir að þó að dánartíðni krabbameinssjúklinga hafi lækkað hér á landi þá hafi hún hlutfallslega lækkað hraðar í nágrannalöndunum en hér. „ Við erum í rauninni ekki að innleiða nýjustu þekkinguna eins fljótt og gert er á hinum Norðurlöndunum. Við höfum ekki aðgengi að rannsóknum og ýmsu öðrum, “ segir Helgi. Þá segir Helgi að þó að staðan sé sú í dag að þeir sem greinast með krabbamein geti fengið meðferð strax þá geti svo farið með fækkun lækna að þeir sem greinast þurfi að bíða eftir meðferð. Helgi hélt erindi á málþingi hjá Krabbameinsfélaginu í dag þar staðan var ræddi. Sigrún Lilja er hjá ráðgjafaþjónstu félagsins. Hún segir bæði sjúklinga og aðstandendur þeirra velta nokkuð fyrir sér stöðunni og hafa nokkrar áhyggjur. Helgi segir algjöra forsendu þess að hægt sé að snúa þróuninni við að nýliðun verði meðal krabbameinslækna á spítalanum en aðeins einn þeirra sé undir fertugu. ,, Hættan er sú að þegar að tíminn líður þá munum við sýna verri árangur en er á hinum Norðurlöndunum „ segir Helgi.
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Innlent Fleiri fréttir Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Sjá meira