Athugasemd við athugasemd Dróma Hafdís Óskarsdóttir skrifar 14. janúar 2013 06:00 Þann 24.12. sl. birtir Drómi athugasemd í Fréttablaðinu við opnu bréfi Hafdísar Óskarsdóttur til alþingismanna 18. desember sl. í sama blaði. Hér með vil ég undirrituð, Hafdís Óskarsdóttir, svara þeirri athugasemd þar sem ég er sögð í veigamiklum atriðum ekki fara með rétt mál. Því er ég alls ekki sammála. Veigamestu atriðin eru eftirfarandi: 1) Hafði ég skriflega samband við Dróma vegna minna mála og boðsendi ég þau bréf persónulega? Svar: Já Fékk ég svar/svör við þeim bréfum, með einum eða öðrum hætti? Svar: Nei 2) Bað ég um málamiðlun, að fá að greiða 5.000 kr. mánaðarlega af hverri milljón sem hvíldi á eign minni, þangað til mál yrðu til lykta leidd? Svar: Já Fékk ég svar, með einum eða öðrum hætti? Svar: Nei 3) Átti eign mín að fara á nauðungaruppboð vegna þess að ég sætti mig ekki við þær 4 greiðsluleiðir sem allar voru einhliða samningar frá hendi Dróma og báru allar afturvirka vexti, athugið þrátt fyrir fyrrgreinda beiðni mína um málamiðlun? Svar: Já Hafði Drómi fyrir því að láta undirritaða vita að fallið hefði verið frá nauðungaruppboði, eftir að dómur Hæstaréttar féll í öðru gengislánamáli? Svar: Nei Það er staðföst trú mín að veigamestu atriðin séu þau sem eru hér ofanskráð. Ég fer ekki með fleipur. Það er líka staðföst trú mín að samskipti við bankastofnun heldur en Dróma hefðu orðið persónulegri og gagnkvæmari, farsælli kostur en raun ber vitni í mínum málum, sem og margra annarra. Í kjölfar fyrri skrifa minna hef ég verið beðin um, af hendi Dróma, að aflétta bankaleynd af upplýsingum um mín skuldamál. Ég kýs að gera það ekki. Í ljósi fyrri samskipta við Dróma, hef ég bara einfaldlega hvorki löngun né geð til þess. Ég tel mig líka hafa afhjúpað sjálfa mig og mín skuldamál nóg, enda hef ég ekkert að fela í þeim efnum. Ég geri það einvörðungu vegna þess að mér finnst tími til kominn að óréttlætinu fylgi uppgjör, þ.e. að óhlutdrægur endurútreikningur verði gerður á ólögmætum gengistryggðum lánum hjá Dróma. Af hverju skyldi ég t.a.m sætta mig við að velja eina af fyrrgreindum leiðum, sem Drómi er enn að bjóða upp á, þegar ljóst er að þær standast ekki lög? Af hverju kemst Drómi upp með að fara ekki eftir dómum Hæstaréttar og endurreikna lánin án frekari málalenginga? Eigum við sem lentum hjá slitastjórn Dróma að sætta okkur við það? Til að undirstrika enn frekar óviðunandi starfshætti Dróma vil ég koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Í netpósti frá Dróma nú á dögunum, þar sem ég er beðin um að aflétta bankaleynd, er mér tjáð að veðskuldabréfið mitt sé hvorki í vörslu Frjálsa né Dróma, heldur sé það komið til þriðja aðila frá því um mitt síðasta ár 2012. Ég spyr: 1) Er það ekki réttur skuldarans að vita í hvers vörslu lán hans er og fá upplýsingar strax um slíkar tilfæringar? 2) Hvers vegna í ósköpunum er Drómi þá að rukka greiðslur af láni mínu nú í haust 2012, sem hann seldi um sumarið sama ár? Ég spurðist fyrir um það hver vörsluaðili láns míns væri en þeirri fyrirspurn er enn ósvarað af hendi Dróma. Að lokum: Í Speglinum á RÚV rétt fyrir jólin talaði Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnar, um háværar raddir gegn Dróma og hvað þær hefðu greiðan aðgang að fjölmiðlum. Af því tilefni langar mig persónulega að segja við þig, Hlynur Jónsson: ?Fólki er frjálst að tjá sig um það sem miður fer í þjóðfélaginu, ég tala nú ekki um sé brotið á mannréttindum þess skv. stjórnarskránni og sem betur fer getur fólk komið erindum sínum á framfæri við fjölmiðla. Við höfum jú heldur ekki öll efni á, sem einstaklingar, að auglýsa hvort heldur eigið ágæti eða meint óréttlæti, sem við verðum að þola, með heilsíðuauglýsingum.? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Um þöggun Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun „Þúsund þorskar á færibandinu...“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Sjá hvað? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Komstu ekki með afmælisgjöf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber skrifar Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun