Tónlist

2000 lítra fiskabúr notað við nýtt myndband Hjaltalín

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Hjaltalín verður með tónleika í Eldborg á næsta ári.
Hjaltalín verður með tónleika í Eldborg á næsta ári. Mynd/Hörður sveinsson
Hljómsveitin Hjaltalín forsýndi nýtt myndband við lagið I Feel You í Hörpu í gærkvöldi.

Myndbandið er frumsýnt á Íslandi á Vísi hér fyrir neðan og á tónlistarblogginu The Line of Best Fit í Bretlandi.

Myndbandinu var leikstýrt af þeim Snorra Eldjárn og Herði Sveinssyni.

Sveitin tilkynnti í gær að hún héldi tónleika í Eldborgarsal Hörpu á næsta ári.

„Hjaltalín verður þá í raun fyrsta hljómsveitin af yngri kynslóðinni sem heldur sína eigin tónleika þar,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður sveitarinnar.

„Við viljum vera með smá „statement“ og hlökkum mikið til að taka þetta skref,“ segir Steinþór og bætir við að fleiri valmöguleikar fyrir ungt fólk til að fara á tónleika í Hörpu hafi vantað, sérstaklega stærri einstaka viðburði, þó svo að hátíðir á borð við Airwaves og Sónar hafi þjónað þessum kúnnahópi frábærlega.

„Við ætlum þess vegna að stilla miðaverði í hóf en samt að leggja allt í þetta varðandi hljóð, ljós og ætlum að frumflytja nýtt efni og fleira til,“ segir Steinþór jafnframt.

Miðasala hefst á hádegi á morgun á heimasíðu Hörpu og midi.is.

„Þetta verða stærstu tónleikar sem við höfum haldið og auðvitað erum við strax orðin hrikalega spennt,“ segir Steinþór að lokum.

Lagið I Feel You er tekið af plötunni Enter 4. Myndbandið er fyrsta tónlistarmyndband þeirra Harðar Sveinssonar og Snorra Eldjárns.

Eftirvinnsla var í höndum Magne Kvam en eins og sjá má í myndbandinu liggur þar mikil vinna að baki. Myndbandið var tekið upp á einum degi í stúdíó 1 hjá Stúdíó Sýrlandi í Vatnagörðum og var meðal annars notast við 2.000 lítra fiskabúr við gerð myndbandsins.

Myndbandið er það fjórða sem Hjaltalín gefur út við lög af plötunni Enter 4, en áður hafa komið út myndbönd við lögin Lucifer/He Felt Like a Woman, Myself og Crack In a Stone. Hið fimmta kemur síðan út snemma á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×