Fæðuóþol og Food Detective Anna Ragna Magnúsardóttir skrifar 2. nóvember 2013 06:00 Þann 10. október síðastliðinn fylgdi Fréttablaðinu sérblaðið Gengur vel. Þar var heilsíðuauglýsing frá fyrirtækinu Heilsanheim.is. Auglýst var greiningartækið Food Detective sem á með mælingu á IgG4 mótefninu í blóði að geta greint óþolsvalda úr fæðu. Mælinguna á hver sem er að geta framkvæmt heima hjá sér. Einnig voru í auglýsingunni gefin upp nöfn fjórtán meðferðaraðila sem framkvæma fæðuóþolsmælingu með Food Detective greiningartækinu og gefa í kjölfarið leiðbeiningar um hvernig best er að forðast óþolsvaldana, og hvað óhætt er að borða í staðinn. Vandaðar vísindarannsóknir hafa ítrekað sýnt að IgG4 mótefnamælingar eru gagnslausar með öllu til að finna ofnæmis- eða óþolsvalda úr fæðu. Það er því hrein peningasóun að kaupa Food Detective greiningartækið eða fara í Food Detective mælingu hjá meðferðaraðila.Orsakir og einkenni fæðuóþols Fæðuóþol ræsir ekki ónæmiskerfið á sama hátt og fæðuofnæmi. Fæðuofnæmi er hægt að greina með mælingu á öðru mótefni sem heitir IgE, en sú mæling greinir ekki fæðuóþol. Ýmsar fæðutegundir og aukefni í fæðu geta valdið fæðuóþoli. Fæðuóþolseinkenni eru svipuð fæðuofnæmiseinkennum, en yfirleitt aldrei lífshættuleg. Einkennin geta verið frá húð, meltingarvegi eða öndunarfærum, og jafnvel höfuðverkur, þreyta eða liðverkir. Einkennin koma fram 30 mín. til 12 klst. eftir neyslu óþolsvaldsins. Ástæða fæðuóþols getur t.d. verið ensímskortur. Skortur á ensíminu laktasa veldur t.d. mjólkuróþoli, því ef laktasann vantar getur líkaminn ekki brotið mjólkursykurinn niður í meltingarveginum. Mjólkuróþol er hægt að staðfesta með því að gefa sjúklingnum mjólkursykur á fastandi maga og taka nokkrar blóðprufur næstu klukkustundirnar til að fylgjast með því hvort mjólkursykurinn meltist og hækkar blóðsykurinn.Fæðuóþol af ókunnum orsökum Oft finnst engin ástæða fyrir fæðuóþoli og engin aðferð til að mæla það. Einfaldast er að prófa að sleppa grunuðum óþolsvaldi úr fæðinu í 2 vikur og fylgjast með hvort einkennin hverfa. Bæta svo óþolsvaldinum aftur við fæðið og sjá hvort einkennin koma aftur. Hugurinn stýrir taugakerfinu, og hefur því áhrif á tilfinningar og líðan, líka líkamlega líðan. Væntingar okkar um bata geta valdið því að einkenni hverfa tímabundið, jafnvel í nokkrar vikur. Ef við erum alveg viss um að einkenni muni koma aftur þegar grunuðum óþolsvaldi er bætt við fæðið, getur það eitt og sér valdið því að einkennin koma aftur. Þetta er gott að hafa í huga ef okkur grunar að við séum með fæðuóþol. Best er að endurtaka tilraunina nokkrum sinnum til að vera viss um að við höfum fundið raunverulega ástæðu lasleikans.Fæðuáreitispróf Eina leiðin til að staðfesta fæðuóþol af ókunnum orsökum er með tvíblindu fæðuáreitisprófi með lyfleysu (control). Þá eru útbúnir tveir skammtar af samskonar mat, og hinum grunaða óþolsvaldi blandað í annan skammtinn, án þess það breyti útliti matarins, bragði, ilmi eða áferð. Sjúklingurinn mætir tvisvar í fæðuáreitispróf með viku millibili. Í annað skiptið fær hann skammtinn með óþolsvaldinum, en í hitt skiptið skammtinn án óþolsvaldsins. Sá sem útbýr skammtana er sá eini sem veit hvor skammturinn inniheldur óþolsvaldinn. Sá sem gefur sjúklingnum viðkomandi skammt og fylgist með einkennunum, veit hins vegar ekki hvor skammturinn inniheldur óþolsvaldinn, og sjúklingurinn veit það ekki heldur. Þess vegna kallast þetta tvíblint próf, af því báðir aðilar eru blindir fyrir því hvort viðkomandi skammtur inniheldur hinn grunaða óþolsvald.IgG4 mótefnamæling Mikið hefur verið reynt að finna einfaldari og fljótlegri leið til að staðfesta fæðuóþol af ókunnum orsökum. Eitt af því helsta sem hefur verið rannsakað er mæling á IgG mótefninu í blóði og undirflokknum IgG4. Því miður benda rannsóknir til þess að mæling á IgG eða IgG4 sé gagnslaus til greiningar á fæðuóþoli. Líkami okkar framleiðir IgG mótefni fyrir þeim fæðutegundum sem við komumst oft í snertingu við, án þess að því fylgi nokkur ofnæmis- eða óþolseinkenni. Þetta hefur t.d. verið prófað með því að spyrja stóran hóp fólks um fæðuvenjur og einkenni sem geta bent til fæðuóþols. IgG4 fyrir ýmsum fæðutegundum var mælt í blóði þeirra. Það mældist hækkun á mótefninu IgG4 fyrir þeim fæðutegundum sem algengar voru í fæði fólksins, en engin tengsl við fæðuóþolseinkenni (BMC gastroenterol. 2012; nov 21; 12:166.). Samtök Evrópskra ofnæmis- og ónæmisfræðinga (European academy of allergy and clinical immunology) gáfu sömuleiðis út yfirlýsingu árið 2008 um að IgG mælingar væru gagnslausar og gæfu eingöngu til kynna ítrekaða snertingu við viðkomandi matvæli (Allergy 2008: 63 : 793-796).Food Detective er gagnslaust próf Hver sem kaupir Food Detective greiningartækið og framkvæmir prófið heima, eða fer til meðferðaraðila sem býður upp á þetta próf, fær lista yfir ýmis matvæli sem fullyrt er að hann eða hún þoli ekki. Staðreyndin er sú að IgG4 mótefni fyrir fæðutegundum gefur bara til kynna að maður hafi ítrekað komist í snertingu við viðkomandi fæðutegundir. Það getur verið mjög flókið að sleppa algengum matvælum alfarið úr fæði sínu. Það getur skert lífsgæði og valdið næringarskorti ef ekki er borðuð nógu fjölbreytt fæða af þeim fæðutegundum sem einstaklingurinn þolir. Oft þurfa einstaklingar með staðfest fæðuofnæmi eða fæðuóþol að taka inn fæðubótarefni til að koma í veg fyrir skort. IgG4 mótefnamæling er ekki rétta forsendan til að taka það skref að takmarka fjölbreytni fæðunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þú getur leyft þér það Rannveig Borg Skoðun Katrín eða Halla Hrund? Reynir Böðvarsson Skoðun Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Sterk, rökföst og réttsýn rödd Jakob S. Jónsson, Skoðun Með réttlætið að leiðarljósi Bergdís Sigurðardóttir Skoðun Almannahagsmunir, fúsk eða spilling? Brynjar Níelsson Skoðun Þarf að rífa eina niður til að hífa mig upp? Þórunn Rakel Gylfadóttir Skoðun Látum frambjóðendur njóta sannmælis Vésteinn Ólason Skoðun Helga Þórisdóttir - Minn forseti Valdimar Óskarsson Skoðun Fylgishrun Höllu Hrundar staðfest Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Með réttlætið að leiðarljósi Bergdís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Katrín eða Halla Hrund? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Sterk, rökföst og réttsýn rödd skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir - Minn forseti Valdimar Óskarsson skrifar Skoðun Styðjum Katrínu Jakobsdóttur Gerður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvaðan kemur þessi ótti við tilfinningar? Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Lyf og dáleiðsla Hannes Björnsson skrifar Skoðun Hvað þarf til að forseti beiti málskotsrétti? Salvör Nordal skrifar Skoðun Kosningar nálgast Halldóra Æsa Aradóttir skrifar Skoðun Auðlindirnar okkar Hólmfríður Sigþórsdóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Almannahagsmunir, fúsk eða spilling? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Fagleg uppbygging myndlistar í forgrunni Tinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Breytum reiði í gleði Natan Kolbeinsson skrifar Skoðun Látum frambjóðendur njóta sannmælis Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Blóðugt upp fyrir axlir Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Greind eða dómgreindarskortur Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Stafrænt samstarf sveitarfélaga þarf aukið vægi Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Fyrir ykkur, Blessing, Mary og Esther Guðrún Árnadóttir,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar Skoðun Þarf að rífa eina niður til að hífa mig upp? Þórunn Rakel Gylfadóttir skrifar Skoðun Hver á að setja málið á dagskrá? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Góður málsvari íslenskrar menningar Kristín Huld Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er hægt að fá bólusetningu gegn "Besserwisserum"? Eygló Halldórsdóttir skrifar Skoðun Söfn í þágu fræðslu og rannsókna Sigurjón Baldur Hafsteinsson skrifar Skoðun Um dánaraðstoð Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Meðmælabréf með forsetaefni Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Sameiningartákn? Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun „Hlutdrægni” Ríkisútvarpsins og „hnignun” íslenskunnar Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Fylgishrun Höllu Hrundar staðfest Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hún Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sósíalismi sem trúarbrögð Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar Sjá meira
Skoðun Um dánaraðstoð Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar