Skyrtur Indriða klæðskera til sölu Freyr Bjarnason skrifar 2. október 2013 08:00 Styrmir Goðason er byrjaður að framleiða skyrtur Indriða Guðmundssonar klæðskera sjö árum eftir fráfall hans. fréttablaðið/Daníel
Fjölskylda Indriða Guðmundssonar klæðskera hefur ákveðið að hefja framleiðslu á skyrtum Indriða sjö árum eftir dauða hans. Styrmir Goðason, fyrrverandi samstarfsmaður Indriða, og Bryndís Marteinsdóttir, ekkja hans og móðursystir Styrmis, standa á bak við framleiðsluna. „Maður hefur fundið fyrir mikilli eftirspurn, sérstaklega núna þegar eigendur skyrtnanna eru að nota þær síðustu upp til agna. Þeir hafa komið að máli við okkur því þeir finna ekki sambærileg gæði eða snið neins staðar annars staðar,“ segir Styrmir, sem þekkir vel til enda starfaði hann í verslunum Indriða bæði í Kaupmannahöfn og á Íslandi. Indriði varð bráðkvaddur í lok árs 2006 á heimili sínu í Kaupmannahöfn. Hann bjó til vinsælan herrafatnað sem hann seldi undir sínum merkjum í eigin verslun á Skólavörðustígnum í þrjú ár og var nýbúinn að opna verslun í Kaupmannahöfn þegar hann lést. „Kormákur og Skjöldur vildu selja fyrir okkur og þess vegna var ekkert því til fyrirstöðu að vinna vinnuna. Gögnin voru til staðar og sniðin líka,“ heldur Styrmir áfram. „Við byrjuðum í mars á þessu ári að grúska í gögnunum hans Indriða og fundum út hvað við vildum gera. Gamlir samstarfsmenn hans hjálpuðu okkur að útfæra þetta. Markmiðið er að gera nákvæmlega sömu skyrtur aftur, þó að mynstrin og litirnir séu alltaf ný, eins og var hjá honum. Við leggjum okkur fram við að velja þetta í anda og stíls Indriða.“ Styrmir telur rétta tímapunktinn að hefja framleiðsluna á nýjan leik núna, sjö árum eftir óvænt fráfall Indriða. „Það þurftu bara allir að jafna sig á þessu. Það var hluti af ástæðunni fyrir því að við fórum ekki fyrr af stað. Núna fannst okkur tímabært að halda merki hans á lofti á nýjan leik.“ Skyrturnar verða komnar í sölu um helgina í Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar.
Mest lesið Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lífið „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Lífið Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tíska og hönnun Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Lífið Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Lífið Yfirlýst lesbía Lífið Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Tónlist Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið Menning Krakkaskaup fyrir fullorðna Gagnrýni Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Menning Fleiri fréttir Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira