Ég hef stefnt að þessu síðan ég var sautján ára Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. ágúst 2013 07:00 Valdís varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2009 og 2012 og í holukeppni sumarið 2010. Henni hefur hins vegar gengið upp og ofan í sumar. Mynd/Stefán „
Ég hef stefnt að þessu síðan ég var sautján ára,“ segir Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni. Valdís Þóra, sem verður 24 ára þann 4. desember, hefur leik á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina degi síðar. Leikið verður í Marokkó þar sem þrjátíu efstu sætin gefa þátttökurétt á mótaröðinni á næsta ári. Valdís hefur verið við háskólanám í Texas í Bandaríkjunum undanfarin fjögur ár. Hún lagði áherslu á innanhússhönnun og lauk náminu í sumar. Hún segist hafa velt fyrir sér að reyna við mótaröðina vestanhafs sem fram fór í vikunni. „Þar sem ég var að breyta sveiflunni minni í maí ákvað ég að bíða og reyna frekar við Evrópumótaröðina.“ Valdís var nýkomin úr líkamsrækt þegar blaðamaður heyrði í henni hljóðið í gærmorgun. Hún æfir af krafti hér heima út september en heldur svo til Orlando í Bandaríkjunum í byrjun október. Þar mun hún æfa við bestu aðstæður í tvo mánuði. „Það er erfitt að æfa hérna heima þegar veðrið er ekki að vinna með manni,“ segir Valdís Þóra sem mun búa í húsi með Alexander Aroni Gylfasyni og Þórði Rafni Gissurarsyni ytra. „Það verður gott að fá samkeppni frá þeim,“ segir Valdís sem ætlar að vera komin til Marokkó ekki seinna en 1. desember. Þá fær hún fjóra daga til æfinga fyrir stóru stundina. „Ég ætla að nýta tímann vel til að jafna mig á tímamismuninum og kynnast grasinu.“ Valdís segir mikinn kostnað fylgja æfingaferðinni til Bandaríkjanna og ferðalaginu til Marokkó. Hún stendur því fyrir styrktarmóti í samstarfi við Leyni á Garðsvelli á Akranesi sunnudaginn 8. september.
Golf Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Landsliðsmaður handtekinn í London Enski boltinn Dómsmál vegna andláts Sala hefst í dag Fótbolti Fleiri fréttir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira