Handbolti

Sú efnilegasta fyrir fimmtán árum er sú besta í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Skúladóttir
Dagný Skúladóttir Mynd/Stefán
Framarinn Jóhann Gunnar Einarsson og Valskonan Dagný Skúladóttir voru valin Handknattleiksfólk ársins á Lokahófi HSÍ um helgina en bæði voru þau að fá þessi verðlaun í fyrsta sinn. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir frá Selfossi og Bergvin Þór Gíslason frá Akureyri voru kosin efnilegust.

Auk þess að vera kosinn bestur af leikmönnum deildarinnar fékk Jóhann Gunnar einnig Valdimarsbikarinn sem er veittur fyrir mikilvægasta leikmanninn að mati þjálfara. Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, fékk Sigríðarbikarinn sem er sams konar verðlaun hjá konum.

Það eru fimmtán ár síðan að Dagný var kosin efnilegasti leikmaður deildarinnar, þá sem leikmaður FH. Dagný er aðeins ein af fjórum sem hafa náð að vinna bæði þessi verðlaun en engin hinna þriggja (Guðný Gunnsteinsdóttir – 5 ár, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir – 3 ár, Stella Sigurðardóttir – 4 ár) þurfti að bíða svona lengi.

Jóhann Gunnar varð fyrsti Framarinn í 15 ár til þess að vera kosinn bestur (Oleg Titov) og endaði um leið þriggja ára einokun HK-inga á þessum verðlaunum.

Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, var valin besti markvörður deildarinnar í sjöunda sinn og jafnaði þar með met Kolbrúnar Jóhannsdóttur. FH-ingurinn Daníel Freyr Andrésson var valinn besti markvörðurinn hjá körlunum.

Steinunn Björnsdóttir úr Fram og Jón Þorbjörn Jóhannsson úr Haukum voru valin bestu varnarmennirnir en Þorgerður Anna Atladóttir úr Val og Björgvin Þór Hólmgeirsson úr ÍR þóttu bestu sóknarmennirnir.

Stefán Arnarson hjá kvennaliði Vals og Einar Jónsson hjá karlaliði Fram voru valdir bestu þjálfararnir, Stefán þriðja árið í röð en Einar er fyrstur til að vinna þessi verðlaun með bæði karla- og kvennaliði.

Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson voru valdir besta dómaraparið sjöunda árið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×