Filippseyjar gefast upp á viðræðum 23. janúar 2013 07:00 Í suður-Kínahafi Filippseyskir fiskveiðibátar halda út á miðin umdeildu. nordicphotos/AFP „
Filippseyjar hafa reynt til þrautar næstum allar leiðir stjórnmála og milliríkjasamskipta til að komast að friðsamlegu samkomulagi í hafréttardeilum sínum við Kína,“ segir Alberto del Rosario, utanríkisráðherra Filippseyja. Hann segir sendiráð sitt því hafa kallað kínverska sendiherrann á Filippseyjum á sinn fund og afhent honum tilkynningu þess efnis, að Filippseyjar ætli að vísa deilu ríkjanna til gerðardóms samkvæmt ákvæðum hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Zhang Hua, talsmaður kínverska sendiráðsins, segir að sendiherrann, sem heitir Ma Keqing, hafi svarað með því að „Kína hafi óumdeilanleg yfirráð yfir eyjunum á Suður-Kínahafi og nærliggjandi hafsvæðum“. Kínverjar hafa ekki tekið neinar efasemdir til greina um yfirráð sín í Suður-Kínahafi. Þvert á móti hafa þeir undanfarin ár og áratugi ítrekað gripið til aðgerða sem hleypt hafa illu blóði í nágrannaríkin. Meðal annars hafa Kínverjar nýlega gefið út ný vegabréf með korti af Kína þar sem Suður-Kínahaf er merkt inn á sem yfirráðasvæði Kína. Alls gera sex ríki tilkall til mismunandi stórra svæða í Suður-Kínahafi. Vaxandi spenna hefur verið í mörgum þessara deilna undanfarna mánuði, sem hefur vakið ótta um að vopnuð átök geti brotist út.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Sjá meira