Stella má ekkert æfa í viku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2013 20:46 Rut Jónsdóttir og Stella Sigurðardóttir á leiknum í kvöld. Mynd/Stefán
Stella Sigurðardóttir gat ekki spilað með Íslandi gegn Sviss í kvöld vegna meiðsla sem hún hlaut á auga í leik liðanna í gær. Ísland hafði betur í kvöld, 27-26, eftir tap í gær. Liðin mætast svo í þriðja sinn í Hertz-hellinum á Seltjarnarnesi klukkan 14.00 á morgun. „Það rauk leikmaður út í hana með þessum afleiðingum. Hún er með lepp og má ekki æfa í að minnsta kosti viku. Hún gæti þess vegna verið lengur frá,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson í samtali við Vísi í kvöld. Stella er þó ekki sú eina í íslenska hópnum sem glímir við meiðsli. Rakel Dögg Bragadóttir missti einnig af leiknum í kvöld þar sem að hún fékk heilahristing á æfingu í morgun.„Hún fékk skot í höfuðið og var ákveðið að taka ekki neina áhættu með því að láta hana spila. Ástand hennar verður svo metið fyrir leikinn í dag en það er alveg ljóst að það verður ekki teflt á tvær hættur með hana.“ Rut Jónsdóttir er einnig frá en hún meiddist á öxl á fyrstu æfingu landsliðsins eftir að það kom saman í vikunni. Þá eru þær Ásta Birna Gunnarsdóttir og Steinunn Björnsdóttir að glíma við erfið meiðsli og ákveðið var að hvíla Ramune Pekarskyte í þessu verkefni vegna smávægilegra meiðsla.
Íslenski handboltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira