"Glerperlur og eldvatn“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. desember 2013 18:45
Framkvæmdastjórn ESB var innan lagaheimilda við að draga til baka IPA-styrki, samkvæmt gildandi reglum. Utanríkisráðherra furðaði sig á ákvörðun framkvæmda-stjórnarinnar að draga þá til baka en kallaði þessa sömu styrki glerperlur og eldvatn í þingræðu og sagði að Ísland hefði enga þörf fyrir þá. Viðbrögð utanríkisráðherra við þeirri ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB að fella niður IPA-styrkveitingar til Íslands hafa vakið mikla athygli og umræðu. Í yfirýsingu sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér á þriðjudagskvöld segir m.a: „Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar kemur Íslendingum í opna skjöldu.“ „Utanríkisráðuneytið hefur komið óánægju íslenskra stjórnvalda með ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar á framfæri og telur utanríkisráðherra að með henni bregðist ESB þeim fjölmörgu samstarfsaðilum sem það hefur gert samninga við.“ „...Er þessi ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar mjög óheppileg.“ Fjallað hefur verið mikið í vikunni um þá staðreynd að viðbrögð ráðherrans þyki sérkennileg í ljósi þess sem hann hefur áður sagt um styrkina. T.d fjallaði Ólafur Stephensen um þetta í leiðara. Þá var þetta innblástur fyrir Halldór Baldursson skopmyndateiknara Fréttablaðsins. Það hefur farið minna fyrir því að spila upptökur af ummælum Gunnars Braga í heild sinni í fjölmiðlum svo áhorfendur geti kveðið upp sinn dóm. Fréttastofan lítur á það sem skyldu sína að gera það.„Ekkkert annað en glerperlur og eldvatn“ Í þingræðu 24. janúar í fyrra sagði Gunnar Bragi: „Þeir styrkir sem um er að ræða eru vitanlega ætlaðir til þess að byggja hér upp og auka trú á að Evrópusambandið sé komið til að vera og komið til þess að laga hér allt sem hægt er að laga á þessu blessaða landi okkar. Það er ekki eðlilegt. Það getur ekki verið eðlilegt að við tökum við fjármunum frá ríki sem við erum að semja við. Við erum væntanlega að semja við þessi ríkjasambönd eða hvað á eiginlega að kalla þetta fyrirbæri. Og þau koma með peninga til okkar. Það er miklu eðlilegra að allar breytingar sem þurfa að verða ef af samningi verður komi eftir á og þá peningarnir. Þetta eru ekkert annað en glerperlur og eldvatn sem er verið að bera hérna fram." Og í þinginu 18. júní í fyrra sagði hann: „Ég er algjörlega á móti því að Ísland þiggi þessa styrki frá Evrópusambandinu. Ég tel að Ísland eigi að vera í vegferð sinni á eigin forsendum, ekki upp á einhverja bitlinga frá Evrópusambandinu sem rekur hér harðan og ósvífinn áróður að mínu viti sem er ekki sannur og réttur og hefur til þess tæki eins og Evrópustofu." Textinn talar sínu máli. Utanríkisráðherrann var harður andstæðingur þess að IPA-styrkirnir yrðu greiddir, en íslenskar stofnanir fara á mis við milljarða króna vegna ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar. Beitti ráðherra sér fyrir því að IPA-styrkir yrðu greiddir þrátt fyrir slit viðræðna? Fyrir helgi sendi fréttastofan eftirfarandi fyrirspurn á Urði Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins og Margréti Gísladóttur, aðstoðarmann Gunnars Braga: Fyrirspurn frá Stöð 2 vegna ákvörðunar framkvæmdastjórnar ESB að draga til baka IPA-styrki og yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins frá sl. þriðjudagskvöldi:Var einhvern tímann sent bréf til framkvæmdastjórnarinnar vegna IPA-styrkjanna? Eða færði utanríkisráðherra það einhvern tímann í tal við fulltrúa ESB að biðja um að þessum IPA-verkefnum yrði haldið áfram? Ekki hefur borist svar við fyrirspurninni. Umræða hefur skapast um hvort framkvæmdastjórn ESB hafi verið heimilt að draga styrkina til baka. Samkvæmt reglugerð um IPA-styrkina hafði ESB slíka heimild. Styrkirnir afmarkast við ríki í aðildarviðræðum/aðlögunarviðræðum en Ísland er ekki lengur í virkum aðildarviðræðum við sambandið. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók síðan þá ákvörðun að leysa samningahópana upp. Báðar þessar ákvarðanir, að hætta viðræðum og leysa samningahópa upp, voru teknar án samþykkis þingsins. Samkvæmt reglugerð um IPA-styrkina ber framkvæmdastjórninni að gæta fjárhagslegra hagsmuna sambandsins til hins ítrasta og IPA-styrkirnir eru aðeins í boði fyrir ríki í aðildarviðræðum.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira