Efast stórlega um að ná að spila handbolta í vetur Stefán Árni Pálsson skrifar 29. ágúst 2013 06:30 Gunnar Harðarson mun að öllum líkindum hvíla út næstkomandi tímabil í handbolta, en hann berst við erfið bakmeiðsli Mynd/Valli
Gunnar Harðarson mun að öllum líkindum ekki leika meiri handbolta á þessu ári og óvíst er hvort næsta tímabil er í hættu hjá leikmanninum. Gunnar hefur síðustu ár verið á mála hjá Valsmönnum og leikið þar stórt hlutverk í varnarleik liðsins sem og verið ákveðinn leiðtogi innan vallar. Hann hefur oft og tíðum verið fyrirliði liðsins. Línumaðurinn er uppalinn í Safamýrinni og lék um tíma með Fram. Erfið bakmeiðsli virðast vera að setja strik í reikninginn hjá Gunnari en hann átti erfitt með að beita sér að fullu á síðasta tímabili. „Ég efast stórlega um það að ég nái að spila handbolta á næsta tímabili,“ segir Gunnar í samtali við Fréttablaðið. „Ég hef ekki enn þá náð mér góðum í bakinu og hugsa að ég verði í stúkunni næsta vetur. Það getur verið að maður komi til með að taka eitthvað þátt en það verður þá aldrei fyrr en seint á tímabilinu,“ segir Gunnar en það er óljóst hvað er að hrjá leikmanninn. „Það er ekki nákvæmlega vitað hvað er að mér í bakinu. Þetta virðist vera einhver grindarskekkja en læknar hafa útilokað að um brjósklos sé um að ræða.“ Gunnar ætlar því líklega að hvíla út næsta tímabil og ná sér að fullu áður en hann fer aftur inn á handboltavöllinn. Ferillinn gæti samt sem áður verið í hættu og skórnir gætu þurft að fara upp í hillu. Mikill missir fyrir Valsmenn.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira