Lífið

Edrú í sex mánuði

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
High School Musical-stjarnan Zac Efron skemmti sér á körfuboltaleik rétt fyrir jól og bar AA-merki um hálsinn sem merkir að hann sé ekki búinn að bragða áfengi í hálft ár.

Zac fór í meðferð í apríl á þessu ári en árið hefur verið viðburðaríkt hjá kappanum. Zac hrasaði heima hjá sér í nóvember og braut á sér kjálkann. Þá lék hann í kvikmyndinni That Awkward Moment sem verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×