Tónlist

"Það er ljóst að íslenskir Sónar aðdáendur þurfa að tryggja sér miða í tíma“

Björn Steinbekk er einn skipuleggjandi Sónar Reykjavík 2014
Björn Steinbekk er einn skipuleggjandi Sónar Reykjavík 2014
„Það er ljóst að íslenskir Sónar aðdáendur þurfa að tryggja sér miða í tíma,“ segir Björn Steinbekk, aðstandandi Sónar Reykjavík, en vegna eftirspurnar hefur " target="_blank">Sónar Reykjavík tekið boði Ticketweb, sem er hluti af Ticketmaster samstæðunni í Bretlandi, um að setja aðgöngumiða á Sónar Reykjavík í sölu á vefsíðu þeirra.  

Ticketweb hefur um árabil selt miða á Sónar Barcelona með góðum árangri.  

Sökum þessa hefur miðum í sölu á Íslandi á Sónar Reykjavik sem fer fram dagana 13-15 febrúar verið fækkað talsvert, að sögn aðstandenda hátíðarinnar.

„Að beiðni Ticketweb settum við 700 miða inn á þeirra kerfi og seldust fyrstu miðarnir strax í gærkvöldi okkur til mikillar ánægju,“ segir Björn, jafnframt.

„Þess má einnig geta að það hafa selst tvöfalt fleiri pakkaferðir á vegum Icelandair en fyrir síðustu hátíð. Þær tölur sem við höfum aðgang að benda til að von sé á um þúsund erlendum gestum á Sónar Reykjavik 2014,“ segir Björn að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×