Hætt að rífast við Miley Cyrus 7. október 2013 11:30 Söngkonurnar tvær hafa deilt hart að undanförnu.
Sinead O'Connor sagði að ritdeilu sinni við Miley Cyrus væri lokið í viðtali í írska spjallþættinum The Late Late Show. Söngkonurnar tvær hafa deilt hart að undanförnu. O´Connor sagði að Cyrus ætti ekki að láta tónlistariðnaðinn breyta sér í "vændiskonu". Cyrus gerði lítið úr ummælunum og vísaði í andlega vanheilsu O´Connor. "Málinu er lokið af minni hálfu. Mig langar eiginlega ekki að tala um það lengur," sagði hún. "Þetta sýst allt saman um að það er verið að myrða tónlistina. Þetta snýst í raun ekki um Miley." O´Connor kennir Simon Cowell, dómaranum úr American Idol og The X-Factor, og Louis Walsh, dómara í The X-Factor í Bretlandi, um "morðið". "Iðnaðurinn hefur náð yfirhöndinni. Peningahliðin er aðalatriðið og reynt er að tengja kynlíf og kynþokka við mjög ungt fólk sem er að búa til plötur. Öll þessi peningadýrkun, skartgripirnir og demantarnir. Allt þetta í kringum Simon Cowell og Louis Walsh snýst um að myrða tónlistina og ég hef áhyggjur af því."
Mest lesið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Heillandi arkitektúr í Garðabæ Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira