Golf

Hefur fengið nóg af kylfingum sem pissa á vellinum

Það er nálægt þessum stað þar sem þvaglátin eiga sér stað samkvæmt kvörtuninni.
Það er nálægt þessum stað þar sem þvaglátin eiga sér stað samkvæmt kvörtuninni. mynd/facebooksíða gkg
Stjórnendum Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar barst afar sérstök kvörtun á dögunum sem klúbburinn hefur komið á framfæri til meðlima sinna.

Svo virðist vera sem karlkynskylfingar séu óhræddir við að kasta af sér vatni nálægt nýjum íbúðablokkum í Þorrasölum.

Útsýnið þar er mjög gott og eflaust margir sem hafa fjárfest í íbúð þar út af útsýninu. Íbúar eru þó að sjá meira en þeir borguðu fyrir samkvæmt kvörtuninni hér að neðan.

Komið þið sæl.

Mig langar að koma þeim tilmælum til skila að þið biðjið golfiðkendur vinsamlega að hætta að kasta af sér þvagi beint fyrir framan blokkirnar í Þorrasölum.

Hér er ekki hægt að vera út á svölum án þess að einhver karlinn taki ekki út á sér "sprellann" og kasti af sér þvagi.

Tek fram að aldrei hef ég séð konu girða niður um sig til að gera það sama.

Í dag virðist vera golfmót í gangi og eru þvaglátin strax byrjuð. Þið eruð núna með lítinn kofa staðsettan þarna á þessu vinsæla "Pissusvæði" við 13. braut

Með kveðju,

Íbúi í Þorrasölum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×