Meistaraflokkur KR í handbolta karla endurvakinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. maí 2013 17:55 Frá vinstri: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður KR, Arnar Jón Agnarsson og Jón Þór Víglundsson formaður handknattleiksdeildar. Mynd/Valli
Arnar Jón Agnarsson verður þjálfari meistaraflokks karla hjá KR í handbolta sem mun tefla fram liði í 1. deild karla á næstu leiktíð í fyrsta skipti í átta ár. KR-ingar hafa ekki starfrækt meistaraflokk frá árinu 2005 þegar liðið sleit samstarfi sínu við Gróttu. KR starfrækti síðast meistaraflokk eitt síns liðs árið 1996. Á blaðamannafundi í Vesturbænum í dag kom fram að nú hafi verið tími til kominn að stíga skrefið á ný. Þar hafi vegið þyngst að yngri iðkendur hafi vantað fyrirmyndir. Um 180 iðkendur eru í yngri flokkum KR en starfsemi þeirra var endurvakin árið 2005. Var Viggó Sigurðsson meðal annars ráðinn til starfa hjá yngri flokkunum í vetur. Þegar komið er upp í 3. flokk hefur vandamál gert vart við sig. Enginn 2. flokkur hefur verið starfræktur frekar en meistaraflokkur og leikmenn í þeim aldursflokki því horfið á braut. Arnar Jón sagðist spenntur fyrir verkefninu á fundinum. „Það á að byggja þetta hægt og rólega upp. Ég reikna með að tala við gamla og góða KR-inga og skora á þá að koma aftur," sagði Arnar Jón. Arnar Jón er fæddur árið 1981 og hefur meðal annars spilað með Stjörnunni og Haukum á ferli sínum. Þá spilaði hann um tíma í Þýskalandi. Arnar Jón spilaði þó ekkert á nýafstaðinni leiktíð. Hann sagðist ekki útiloka það að spila með liðinu en hugmyndin væri fyrst og fremst að byggja liðið á KR-ingum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira