Handbolti verður sýnd á Cannes 18. apríl 2013 14:49 Mundi og Vigfús við frumsýningu myndarinnar í Bíó Paradís. „
Ég er bara ótrúlega ánægður, það er bara heiður að komast þangað,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Vigfús Þormar Gunnarsson en stuttmynd hans og útskriftarverkefnið, Handbolti, verður sýnd á stuttmyndahátíð Cannes í Frakklandi í maí. Það var fatahönnuðurinn Mundi sem leikstýrði myndinni en Vigfús leikur aðalhlutverkið og framleiðir. Stuttmyndahátíðin er hluti af Cannes hátíðinni frægu og snýst að miklu leytinu til um það að ungir kvikmyndagerðamenn gera stuttmyndir eða stiklur og reyna svo að koma á fundi með framleiðendum og selja hugmyndir sínar áfram. Vigfús er raunar ekki viss hvort hann fari á hátíðina. „En ég veit að Mundi er spenntur,“ segir hann en Mundi er búsettur í Berlín í Þýskalandi. Myndin fjallar um ungan handboltamann sem er góður í sínu fagi. „En hann á sér dekkri hlið sem tekur hann og áhorfandann í súrrealískt ferðalag,“ útskýrir Vigfús. Myndin er sú fyrsta sem Vigfús gerir en aðspurður hvaða einkun hann fékk fyrir hana í kvikmyndaskóla Íslands verður hann vandræðalegur og svarar, „hún var ekkert sérstaklega góð, enda skilaði ég henni frekar grófklipptri. Við unnum svo í henni í heilt ár á eftir og ég held að ég myndi nú fá hærri einkun fyrir hana í dag.“ Vigfús og Mundi eru ekki einu íslensku kvikmyndagerðamennirnir sem verða á Cannes, en Vísir greindi frá því í dag að framleiðandinn Þórir Snær Sigurjónsson verður þar einnig. Hann framleiddi kvikmyndina Only God Forgives eftir Nicholas Winding Refn, en sú mynd mun keppa um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Í aðalhlutverkum eru þau Ryan Gosling og Kristin Scott Thomas.Hægt er að horfa á stiklu úr myndinni hér.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Sjá meira