Bílar

Kia cee´d GT - 204 hestöfl

Sala á bílnum hefst á miðju ári í Evrópu.

Á bílasýningunni í Genf í mars mun Kia kynna kraftaútfærslu af magnsölubílnum Kia cee´d, sem selst hefur ágætlega hér á landi. Hann er með 1,6 lítra bensínvél með túrbínu og 204 hestöfl.

Hann skartar auk þess 18 tommu álfelgum, Recaro sætum, fótstigum úr áli, LED ljósum, tvöföldu pústkerfi og aðeins 2 hurðum eins og sönnum sportbíl sæmir. Kia cee´d GT verður innan við 8 sekúndur í hundraðið.

Bíllinn er talsvert frábruginn venjulegum Kia cee´e að ytra útliti, en hann var teiknaður í hönnunarstúdíói Kia í Frankfurt í Þýskalndi og aðalhönnuður hans eins og með aðra Kia bíla var Peter Schreyer. Bíllinn verður hinsvegar smíðaður í Slóvakíu og framleiðslan hefst í maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×