Kínverskir BMW og heita Zhi Nou Finnur Thorlacius skrifar 8. apríl 2013 09:30 Það gæti orðið jepplingurinn X1 sem fyrstur bæri nafnið Zhi Nou
Verða seldir víðar en í Kína og líklega í Evrópu. Ekkert lát er á fjárfestingu bílaframleiðenda í Kína og það nýjasta í þeim efnum er að BMW ætlar að leyfa kínverskum samstarfsaðila sínum, bílaframleiðandanum Brilliance, að smíða BMW bíla undir nafninu Zhi Nou. Ekki liggur fyrir hvort það séu núverandi módel BMW eða eitthvað eldri. Fyrri getgátur voru uppi um smíði eldri gerðar 3-línu BMW sem ber framleiðslunúmerið E90, en nú þykir fullt eins líklegt að smíðaður verði X1 jepplingur eins og sést hér á myndinni. Líklega verður fyrsti BMW bíllinn sem smíðaður verður af Brilliance sýndur á bílasýningunni í Shanghai seinna í þessum mánuði. Það sem er ef til vill athygliverðast er það að útflutningur á þessum bílum er ekki útilokaður og fullt eins horft til Evrópu sem annarra markaða. Því gæti Evrópubúum staðið til boða að kaupa kínverska BMW bíla sem væru vafalaust miklu ódýrari en þeir þýsku. Skammt er síðan að Mercedes Benz greindi frá því að samstarfsaðili þeirra í Kína, BAIC Motor, smíði brátt bíla sem séu í raun af Benz gerð. Mercedes Benz á reyndar 12% hlutafjár í BAIC Motor.
Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent