Cristiano Ronaldo finnur til með Bale Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2013 22:45 Cristiano Ronaldo fagnar marki með Gareth Bale. Mynd/NordicPhotos/Getty
Cristiano Ronaldo missti á dögunum titilinn dýrasti knattspyrnumaður heims þegar lið hans Real Madrid keypti Gareth Bale fyrir 85 milljónir punda frá Tottenham. Portúgalinn þekkir það vel að spila undir svona svakalegri peningapressu. Síðan kaupin fóru fram hefur Gareth Bale aðeins byrjað einn leik fyrir Real Madrid og verið mikið frá vegna meiðsla. Á sjö vikum hefur velski landsliðsmaðurinn aðeins náð að spila 147 mínútur. „Við megum ekki setja svona mikla pressu á hann. Það er ekki gott fyrir hann," sagði Cristiano Ronaldo við BBC. „Hann vill ólmur læra og við verðum að reyna að hjálpa honum. Við verðum að taka pressuna af honum og leyfa honum að aðlagast í friði. Takist okkur það þá mun hann reynast liðinu vel," sagði Cristiano Ronaldo. Gareth Bale skoraði í sínum fyrsta leik með Real Madrid í september en hefur síðan verið að glíma við meiðsli í mjöðm. Bale kom inná sem varamaður um síðustu helgi og fiskaði víti sem Ronaldo skoraði úr. „Hann er að standa sig vel. Þetta hefur verið svolítið erfitt fyrir hann því hann fékk ekkert undirbúningstímabil og er búinn að vera meiddur. Það er samt öllum ljóst hversu spenntur hann er fyrir að spila fyrir Real Madrid," sagði Ronaldo.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira