Útilegukortið Arnar Barðdal skrifar 14. apríl 2012 06:00 Steinar Berg, ferðaþjónustubóndi að Fossatúni, ritaði grein í Fréttablaðið þann 12. apríl sl. undir yfirskriftinni niðurgreidd ferðaþjónusta. Grein Steinars er einhvers konar ákall til stéttarfélaga um að hætta kaupum á Útilegukortinu til sinna félagsmanna. Í grein Steinars kemur fram misskilningur sem við teljum nauðsynlegt að leiðrétta. Steinar fullyrðir að á fimmta tug tjaldsvæða séu á kortinu og flest þeirra á vegum sveitarfélaga sem niðurgreiða reksturinn. Í Útilegukortinu eru 44 tjaldsvæði sem korthafar hafa nær ótakmarkaðan aðgang, þar af eru 67% tjaldsvæðanna í rekstri einkaaðila rétt eins og Steinars. Algengt er að sveitarfélög bjóði út rekstur tjaldsvæða, og þó svo að tjaldsvæði beri heiti sveitarfélagsins þýðir það ekki að sveitarfélagið sjái um rekstur þess. Það má einnig benda á að í máli Steinars má skilja að tjaldsvæði sem rekin eru af sveitarfélögum séu ekki uppbyggð af sama metnaði og helstu tjaldsvæði landsins, sem byggð hafa verið upp undanfarin ár, eins og þau tjaldsvæði sem eru í Útilegukortinu séu ekki ein af helstu tjaldsvæðum landsins. Útilegukortið hefur á að skipa fjölbreyttum tjaldsvæðum og eru flest þeirra vel samkeppnisfær við annars mjög glæsilegt tjaldsvæði sem Steinar hefur byggt upp í Fossatúni. Steinar fullyrðir að margir kaupendur Útilegukortsins séu erlendir ferðaskipuleggjendur sem koma með marga hópa húsbílafólks og að þessir aðilar kaupi t.d. 20 kort sem þeir nota fyrir hópinn. Að loknu ferðalagi séu sömu kortin notuð aftur fyrir næsta hóp. Þannig séu kortin misnotuð aftur og aftur. Við höfum því miður engin staðfest dæmi um slíka misnotkun sem Steinar bendir á, en viljum taka fram að hvert kort er merkt með nafni eiganda kortsins, sem eigandi á að framvísa með skilríkjum við komu á tjaldsvæði. Með þessu á að vera komið í veg fyrir slíka misnotkun. Ef einhverjum tekst að misnota kortið þá liggur tjónið hjá Útilegukortinu en ekki Steinari Berg. Síðan Útilegukortið kom fyrst út árið 2007 hafa stéttarfélög í auknum mæli boðið kortið til félagsmanna sinna rétt eins og stéttarfélög niðurgreiða ferðakostnað og leigja út sumarbústaði til félagsmanna sinna. Leiga sumarbústaða er í þessu sambandi einnig niðurgreidd af stéttarfélögum. Það er því fullkomlega eðlilegt að stéttarfélög komi til móts við þann stóra hóp Íslendinga sem ferðast vill innanlands og gista á tjaldsvæðum. Að lokum viljum við benda á að Útilegukortið gefur fleirum kost á að ferðast á ódýran og hagkvæman hátt um landið og er það markmið Útilegukortsins að bæta ávallt þjónustuna við viðskiptavini sína. Vinsældir Útilegukortsins hafa verið miklar sem endurspeglast í auknum fjölda tjaldsvæða sem óskar eftir að vera þátttakendur í Útilegukortinu og komast færri að en vilja. Við viljum einnig nota tækifærið og bjóða Steinari að koma til viðræðna við okkur um að vera með þeirri stóru ferðafjölskyldu sem Útilegukortið er. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Sex hlutir sem þú vissir ekki um húsnæðisfélög Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fann málbeinið sitt Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Þegar hið óhugsanlega gerist Hrefna Sigurjónsdóttir Skoðun Ábyrgð og ábyrgðarleysi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun Gamla Reykjavíkurhöfn - Vesturbugt – ákall um nýtt skipulag Páll Jakob Líndal Skoðun Þegar óttinn er ekki sannur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði! Harpa Barkardóttir Skoðun Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason Arnar Þór Ingólfsson Skoðun „Eruð þið sammála lausagöngu katta?“ Sighvatur Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði! Harpa Barkardóttir skrifar Skoðun Gamla Reykjavíkurhöfn - Vesturbugt – ákall um nýtt skipulag Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fann málbeinið sitt Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sex hlutir sem þú vissir ekki um húsnæðisfélög Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Þegar hið óhugsanlega gerist Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Ábyrgð og ábyrgðarleysi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Þegar óttinn er ekki sannur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Á flandri í klandri Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Átak til að stytta biðlista barna eftir sérfræðiaðstoð Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Hverjir borga leikskólann í Kópavogi? Örn Arnarson skrifar Skoðun Tölvupóstar fjórðu iðnbyltingarinnar Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun „Skömmin þín“ Jokka G. Birnudóttir skrifar Skoðun Tökum samtalið Gunnþór Ingvason skrifar Skoðun „Eruð þið sammála lausagöngu katta?“ Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Réttlæti fyrir þjóðina, framfarir fyrir landsbyggðina Guðmundur Ari Sigurjónson skrifar Skoðun Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Stuðningur við nýsköpun í menntun: Leið að betra mati Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar illfygli leiðir stórmennskubrjálæðing Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Afruglari Þórður Björn Sigurðsson skrifar Skoðun Þjóðkirkja á réttri leið Þórður Guðmundsson skrifar Skoðun Staðreyndir um einfaldara regluverk Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Falin tækifæri til náms Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind í námi: 5 lykilskref fyrir öryggi nemenda Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar Sjá meira
Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar
Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson skrifar
Skoðun Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar
Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun