Snert Hörpu mína himinborna dís Ólafur Hannesson skrifar 13. janúar 2012 06:00 Ég fór á nýárstónleika Lúðrasveitar Þorlákshafnar sem haldnir voru í Ráðhúsi Ölfuss 7. janúar og verð ég að hrósa henni fyrir stórkostlega tónleika. Ástríðan skein úr andlitum þeirra, sást og heyrðist langa leið að þarna var á ferð hópur sem var að spila af hinni mestu einlægni og kom það vel út í spilamennsku þeirra. Ég er ákaflega stoltur af þessari sveit og vona að önnur sveitarfélög hafi yfir svona hæfileikum að ráða. Þessi sveit er rekin á vinnu sveitarmeðlima og frjálsum framlögum, þetta hæfileikaríka fólk er ekki að fá borgað fyrir þessa vinnu, enda er þetta ástríða þess og kemur það vel fram sem hjartahlý innlifun í tónlist þeirra. Ég er ekki stærsti aðdáandi Hörpunnar sem var vígð á síðasta ári, en húsið er nú komið upp og við berum kostnað af því sem þjóð. Þetta hús á að vera fyrir þjóðina alla, og eflaust er það hugsun þeirra er að húsinu standa. Ég vil því leggja til að stjórnendur Hörpunnar taki sig til og stofni til tónleikaraðar þar sem sveitum um allt land er boðið að halda tónleika í Hörpunni þeim að kostnaðarlausu. Er það von mín að Lúðrasveit Þorlákshafnar verði fengin til að hefja þá tónleikaröð og er ég þess handviss að sú sveit myndi sóma sér ákaflega vel í þeim salarkynnum sem í Hörpunni má finna. Þessi tónleikaröð yrði til þess fallin að tengja landsbyggðina betur við húsið og jafnframt að gefa þessum stórkostlegu sveitum tækifæri til að spila í sölum sem hæfa þeirra hæfileikum og gefa höfuðborgarbúum tækifæri til að hlusta á þetta tónlistarfólk sem fram hjá alltof mörgum fer. Davíð Stefánsson orti Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar Guðs í paradís. Er ég þess viss að englar Guðs muni hlusta á, ef sveitir á borð við Lúðrasveit Þorlákshafnar spila í Hörpunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryggi og gæði í leikskólum – ábyrgð okkar Gunnþórunn Valsdóttir skrifar Skoðun Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa Hveragerðis Lárus Jónsson skrifar Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason skrifar Skoðun Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Frí tómstund fyrir þitt barn? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Í skólanum er skemmtilegt að vera - eða hvað? Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannarómur um gervigreind Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Amma mætti á þing kennara Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Ég fór á nýárstónleika Lúðrasveitar Þorlákshafnar sem haldnir voru í Ráðhúsi Ölfuss 7. janúar og verð ég að hrósa henni fyrir stórkostlega tónleika. Ástríðan skein úr andlitum þeirra, sást og heyrðist langa leið að þarna var á ferð hópur sem var að spila af hinni mestu einlægni og kom það vel út í spilamennsku þeirra. Ég er ákaflega stoltur af þessari sveit og vona að önnur sveitarfélög hafi yfir svona hæfileikum að ráða. Þessi sveit er rekin á vinnu sveitarmeðlima og frjálsum framlögum, þetta hæfileikaríka fólk er ekki að fá borgað fyrir þessa vinnu, enda er þetta ástríða þess og kemur það vel fram sem hjartahlý innlifun í tónlist þeirra. Ég er ekki stærsti aðdáandi Hörpunnar sem var vígð á síðasta ári, en húsið er nú komið upp og við berum kostnað af því sem þjóð. Þetta hús á að vera fyrir þjóðina alla, og eflaust er það hugsun þeirra er að húsinu standa. Ég vil því leggja til að stjórnendur Hörpunnar taki sig til og stofni til tónleikaraðar þar sem sveitum um allt land er boðið að halda tónleika í Hörpunni þeim að kostnaðarlausu. Er það von mín að Lúðrasveit Þorlákshafnar verði fengin til að hefja þá tónleikaröð og er ég þess handviss að sú sveit myndi sóma sér ákaflega vel í þeim salarkynnum sem í Hörpunni má finna. Þessi tónleikaröð yrði til þess fallin að tengja landsbyggðina betur við húsið og jafnframt að gefa þessum stórkostlegu sveitum tækifæri til að spila í sölum sem hæfa þeirra hæfileikum og gefa höfuðborgarbúum tækifæri til að hlusta á þetta tónlistarfólk sem fram hjá alltof mörgum fer. Davíð Stefánsson orti Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar Guðs í paradís. Er ég þess viss að englar Guðs muni hlusta á, ef sveitir á borð við Lúðrasveit Þorlákshafnar spila í Hörpunni.
Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar