Hjónanámskeið í 15 ár 16. apríl 2012 07:00 Á þessu vori eru liðin 15 ár síðan fyrst voru haldin námskeið fyrir pör og sambúðarfólk undir heitinu „Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð“. Fyrsta námskeiðið var haldið árið 1996 í Hafnarfjarðarkirkju. Þá var ætlunin að bjóða upp á tvö námskeið, eitt um haust og eitt að vori, og láta það duga. Viðbrögðin voru aftur á móti strax í upphafi mjög sterk og áhuginn á slíkum námskeiðum mikill. Þetta var tilboð sem greinilega vantaði inn í íslenskt samfélag á þessum tíma. Síðan eru sem sagt liðin 15 ár í einni sjónhendingu og námskeiðin eru orðin óteljandi. Þau hafa verið með ýmsu sniði. Í gegnum árin hefur verið boðið upp á þau reglulega í Hafnarfjarðarkirkju en auk þess hafa námskeiðin verið haldin um allt land og margoft á sumum stöðum, eins og til dæmis á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og í Reykjavík. Þá hafa þau verið haldin í samvinnu við heimamenn á hverjum stað, foreldrafélög skóla, hin ýmsu félagasamtök, starfsmannafélög og þannig mætti lengi telja. Námskeiðin hafa einnig verið haldin í Ósló, Stokkhólmi og Gautaborg. Fjöldinn sem hefur sótt þessi námskeið frá upphafi er í kringum 6.000 pör. Ef leitað er skýringa á vinsældum námskeiðanna er helst til að taka að þau eru byggð þannig upp að hvert og eitt par getur á námskeiðunum mótað efnið og umfjöllunina að sínu höfði. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi – en verða um leið að horfast í augu við sjálfa sig og sitt líf. Námskeiðin eru umfram allt lausnarmiðuð og mörg pör sækja námskeiðin til að efla og styrkja það sem gott er. Og heimaverkefnin hafa nýst mörgum vel til framtíðar. Þó liðin séu 15 ár frá því að námskeiðin hófust og þó samfélagið hafi tekið algerum stakkaskiptum á þessum árum, þá er þörfin enn mikil fyrir námskeið af þessu tagi. Til að halda upp á tímamótin verður þess vegna boðið upp á hjónakvöld í Kaldalóni Hörpu þann 30. apríl næstkomandi. Þar verður reynsla áranna dregin saman og bent á nýjar leiðir fyrir pör til að styrkja samband sitt á nýjum tímum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Á þessu vori eru liðin 15 ár síðan fyrst voru haldin námskeið fyrir pör og sambúðarfólk undir heitinu „Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð“. Fyrsta námskeiðið var haldið árið 1996 í Hafnarfjarðarkirkju. Þá var ætlunin að bjóða upp á tvö námskeið, eitt um haust og eitt að vori, og láta það duga. Viðbrögðin voru aftur á móti strax í upphafi mjög sterk og áhuginn á slíkum námskeiðum mikill. Þetta var tilboð sem greinilega vantaði inn í íslenskt samfélag á þessum tíma. Síðan eru sem sagt liðin 15 ár í einni sjónhendingu og námskeiðin eru orðin óteljandi. Þau hafa verið með ýmsu sniði. Í gegnum árin hefur verið boðið upp á þau reglulega í Hafnarfjarðarkirkju en auk þess hafa námskeiðin verið haldin um allt land og margoft á sumum stöðum, eins og til dæmis á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og í Reykjavík. Þá hafa þau verið haldin í samvinnu við heimamenn á hverjum stað, foreldrafélög skóla, hin ýmsu félagasamtök, starfsmannafélög og þannig mætti lengi telja. Námskeiðin hafa einnig verið haldin í Ósló, Stokkhólmi og Gautaborg. Fjöldinn sem hefur sótt þessi námskeið frá upphafi er í kringum 6.000 pör. Ef leitað er skýringa á vinsældum námskeiðanna er helst til að taka að þau eru byggð þannig upp að hvert og eitt par getur á námskeiðunum mótað efnið og umfjöllunina að sínu höfði. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi – en verða um leið að horfast í augu við sjálfa sig og sitt líf. Námskeiðin eru umfram allt lausnarmiðuð og mörg pör sækja námskeiðin til að efla og styrkja það sem gott er. Og heimaverkefnin hafa nýst mörgum vel til framtíðar. Þó liðin séu 15 ár frá því að námskeiðin hófust og þó samfélagið hafi tekið algerum stakkaskiptum á þessum árum, þá er þörfin enn mikil fyrir námskeið af þessu tagi. Til að halda upp á tímamótin verður þess vegna boðið upp á hjónakvöld í Kaldalóni Hörpu þann 30. apríl næstkomandi. Þar verður reynsla áranna dregin saman og bent á nýjar leiðir fyrir pör til að styrkja samband sitt á nýjum tímum.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar