Innlent

Hrósar Selfosslögreglunni í hástert fyrir elju

Lögreglan telur sig hafa upplýst nauðganirnar þrjár á síðustu Þjóðhátíð.
Lögreglan telur sig hafa upplýst nauðganirnar þrjár á síðustu Þjóðhátíð. Mynd/óskar P. Friðriksson
„Ég er rosalega ánægð með rannsóknarlögregluna á Selfossi,“ segir Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir, réttargæslumaður þriggja kvenna sem tilkynntu um nauðgun eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ágústbyrjun.

Tvö málanna upplýstust tiltölulega fljótt en það þriðja, gegn ólögráða stúlku, ekki fyrr en nú í byrjun vikunnar, tveimur og hálfum mánuði eftir atvikið. Lögreglan hafði þá lent í miklum ógöngum með málið, verið neitað um gögn frá símafyrirtækjum, sent óskýrt skjáskot úr öryggismyndavél til fjölmiðla án árangurs og lýst því yfir að öll sund væru svo gott sem lokuð í rannsókninni.

„Þegar myndbirtingin bar ekki árangur þá átti ég alveg eins von á málið mundi ekki skýrast,“ segir Elva Dögg. „En ég var ótrúlega glöð þegar ég heyrði að þeir hefðu fundið sakborninginn.“

Hún segir að embættið hafi unnið mjög gott starf frá fyrsta degi. „Mér finnst þeir hafa verið rosalega duglegir. Fyrstu viðbrögð voru mjög góð, samskiptin við mig til fyrirmyndar og rannsóknin öll. Að öðrum ólöstuðum finnst mér þeir vinna mjög gott starf. Þeir gefast greinilega ekki upp.“

Oddur Árnason yfirlögregluþjónn segir niðurstöðuna þrautseigju að þakka. „Í þessu tilfelli er þetta bara mjög vönduð vinna rannsóknarlögreglumanna sem skilaði okkur þessum árangri. Þegar menn fara að tína saman öll brot sem er aflað inn í myndina þá leiðir það okkur að veikum möguleika sem er kannaður og reynist þá vera réttur.“- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×