Sittu! Kristján Helgason skrifar 17. apríl 2012 06:00 Verðtryggingin er eins og hundur sem eltist við skottið á sér, hraðar og hraðar, án nokkurs árangurs. Í stað þess að stuðla að réttlátri endurgreiðslu skulda, þá er hún hrein og klár eignatilfærsla frá lántaka til lánveitanda. Þetta er dæmi sem gengur ekki upp. Samkomulag sem tekur aðeins tillit til þarfa annars aðilans er dæmt til að mistakast. Mikið hefur verið rætt um 20% niðurfellingu skulda, en hún leysir ekki vandann. Ekki er heldur sátt um afnám verðtryggingar. Viljum við hverfa aftur til þess tíma þegar það borgaði sig að skulda sem mest og láta verðbólguna vinna fyrir sig? Ég segi nei. Einfaldasta leiðin er að breyta útreikningi verðtryggingarinnar, þetta eru jú bara reiknireglur, samkomulag um hvernig við viljum haga hlutunum. Ég er einn af þeim sem tók á mig skell þegar bankakerfið hrundi, það svíður undan 20% hækkun fasteignalána á einu ári af tveimur eignum, en ég hef breitt bak. Við ákváðum að standa þetta af okkur saman sem þjóð. Vissulega væri gaman að sjá lánin lækka á einu bretti um 20%, en það er skammgóður vermir. Vandamálið verður áfram til staðar. Með óbreyttri verðtryggingu halda skuldirnar áfram að hækka þó ég standi í skilum upp á punkt og prik. Og það sem verra er, afborganir húsnæðislána munu á næstu árum taka stöðugt hærri toll af mánaðarlaunum mínum uns ekkert er eftir. Ný verðtrygging er mesta hagsmunamál okkar kynslóðar, samanborið við lánakjör eru launakjör þvílíkt aukaatriði. Það er kominn tími á nýtt samkomulag, nýja þjóðarsátt. Breytum útreikningi verðtryggingar þannig að allir geti unað sáttir. Tökum stjórn á hundinum okkar í stað þess að láta hann stjórna okkur. Segjum honum að sitja, hann er hvort sem er orðinn þreyttur á þessari hringavitleysu. Sittu! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar Skoðun Lækkum álögur og afnemum byggingarrétt af atvinnulóðum Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson skrifar Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson skrifar Sjá meira
Verðtryggingin er eins og hundur sem eltist við skottið á sér, hraðar og hraðar, án nokkurs árangurs. Í stað þess að stuðla að réttlátri endurgreiðslu skulda, þá er hún hrein og klár eignatilfærsla frá lántaka til lánveitanda. Þetta er dæmi sem gengur ekki upp. Samkomulag sem tekur aðeins tillit til þarfa annars aðilans er dæmt til að mistakast. Mikið hefur verið rætt um 20% niðurfellingu skulda, en hún leysir ekki vandann. Ekki er heldur sátt um afnám verðtryggingar. Viljum við hverfa aftur til þess tíma þegar það borgaði sig að skulda sem mest og láta verðbólguna vinna fyrir sig? Ég segi nei. Einfaldasta leiðin er að breyta útreikningi verðtryggingarinnar, þetta eru jú bara reiknireglur, samkomulag um hvernig við viljum haga hlutunum. Ég er einn af þeim sem tók á mig skell þegar bankakerfið hrundi, það svíður undan 20% hækkun fasteignalána á einu ári af tveimur eignum, en ég hef breitt bak. Við ákváðum að standa þetta af okkur saman sem þjóð. Vissulega væri gaman að sjá lánin lækka á einu bretti um 20%, en það er skammgóður vermir. Vandamálið verður áfram til staðar. Með óbreyttri verðtryggingu halda skuldirnar áfram að hækka þó ég standi í skilum upp á punkt og prik. Og það sem verra er, afborganir húsnæðislána munu á næstu árum taka stöðugt hærri toll af mánaðarlaunum mínum uns ekkert er eftir. Ný verðtrygging er mesta hagsmunamál okkar kynslóðar, samanborið við lánakjör eru launakjör þvílíkt aukaatriði. Það er kominn tími á nýtt samkomulag, nýja þjóðarsátt. Breytum útreikningi verðtryggingar þannig að allir geti unað sáttir. Tökum stjórn á hundinum okkar í stað þess að láta hann stjórna okkur. Segjum honum að sitja, hann er hvort sem er orðinn þreyttur á þessari hringavitleysu. Sittu!
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar
Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun