Opið bréf frá Falun Gong iðkendum Þórdís Hauksdóttir og Peder Giertsen skrifar 10. apríl 2012 14:00 Falun Gong iðkendur styðja af heilum hug þingsályktun Guðmundar Steingrímssonar og tíu annarra þingmanna Alþingis sem miðar að formlegri leiðréttingu á þeim óheppilegu aðgerðum sem beindust gegn Falun Gong iðkendum í tengslum við opinbera heimsókn þáverandi leiðtoga Alþýðulýðveldisins Kína til Íslands í júní 2002. Í maí síðastliðnum bárust þær góðu fréttir að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar beðið Falun Gong iðkendur sem mættu óréttlátri meðferð á Íslandi á þessum tíma afsökunar úr ræðustól Alþingis. Falun Gong iðkendur líta á þingsályktunartillöguna sem nú liggur fyrir Alþingi sem dýrmætt tækifæri fyrir Ísland að leiðrétta enn frekar þær óréttlátu og ólöglegu aðgerðir sem Falun Gong iðkendur voru beittir hérlendis og á flugvöllum víða um heim. Meirihluti íslensku þjóðarinnar var ósáttur við þá atburði og margir reiðir og hneykslaðir á banninu. Þúsundir Íslendinga gengu um götur til stuðnings þeim rétti Falun Gong iðkenda að minna á mannréttindabrot kínverskra yfirvalda. Alþjóðasamfélagið var ekki síður slegið vegna framgöngu íslenskra stjórnvalda samanber fyrirsögn bandarísks dagblaðs, „Iceland kowtows to China" og spurningu bandarísks þingmanns með áherslu á hvert orð „Did Iceland really do that?". Því miður hafa ofsóknirnar á hendur Falun Gong iðkendum í Kína haldið áfram og hugur okkar er með þeim sem nú þola auknar pyntingar vegna nýrrar margmilljarða herferðar kínverska kommúnistaflokksins á hendur Falun Gong sem lesa má um í trúnaðarskjölum flokksins, sum þeirra aðgengileg á netinu. Ofsóknirnar á hendur Falun Gong iðkendum hafa kallað á viðbrögð alþjóðasamfélagsins og ítrekað verið fordæmdar af Sameinuðu þjóðunum, þingmönnum og ráðherrum fjölda landa, mannréttindastofnunum og fleirum. Bæði fulltrúaþing Bandaríkjanna og Öldungadeild hafa nokkrum sinnum ályktað gegn ofsóknunum. Á árinu 2009 gaf argentínskur dómari út handtökuskipun á hendur Jiang Zemin (og öðrum háttsettum embættismönnum í Kína eins og Luo Gan) fyrir glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð á Falun Gong iðkendum í Kína, í kjölfar fjögurra ára rannsóknar. Yfirlýsingar, dómar og ályktanir sem styðja mannréttindi á heimsvísu hafa gríðarlegt gildi fyrir þá sem þurfa að þola ómannúðlegar ofsóknir og pyntingar – sem og alla sem láta sig þau brot varða. Á Íslandi er löng hefð fyrir lýðræði og mannréttindum. Við trúum að það sé af hinu góða fyrir þjóðina og framtíð hennar að hvika ekki frá þeim grunngildum arfleifðar sinnar og halda á lofti virðingu fyrir réttlæti á heimsvísu. Stuðningur við þingsályktunina er afstaða í samhljómi við rödd þjóðarinnar, í samræmi við úrskurð umboðsmanns Alþingis og Persónuverndar og í anda grundvallarsiðferðisviðmiða og réttlætis. Sá stuðningur er sömuleiðis mikilvægur öllum Falun Gong iðkendum sem hlutu illa meðferð og voru sviptir réttindum sínum af hálfu stjórnvalda á þessum tíma, einkum þeim rétti að vekja athygli á óréttlæti og mannréttindabrotum. Undirrituð, sem hafa leitað eftir samræðu við íslensk stjórnvöld á vegum Falun Gong Iceland Dialogue Committee, hvetja þingmenn Alþingis til að samþykkja þingsályktunartillöguna og með því leiðrétta þau brot sem framin voru, til góðs fyrir bæði Falun Gong iðkendur og Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar